Umhverfi & skipulag
Mótun samfélags í sátt við náttúruna
Á sviði umhverfis og skipulags er unnið að mótun samfélagsins og þróun byggðar með áherslu á sjálfbærni, umhverfisábyrgð og vistvæna þróun sem tekur mið af þörfum fólks og náttúru.
Verkefni sviðsins spanna m.a. mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og skipulagsáætlana, sjálfbærni- og umhverfisráðgjöf, úrgangsstjórnun og umhverfisúttektir, leyfisumsóknir vegna framkvæmda eða reksturs o.fl. Skipulagsgerð er einnig stór þáttur af starfsemi sviðsins þar sem unnin eru m.a. aðalskipulög, deiliskipulög og rammaskipulög fyrir sveitarfélög og framkvæmdaraðila.
Með öflugri nýtingu landupplýsinga og GIS-tækni tryggjum við nákvæma greiningu og faglega stefnumótun með aðgengilegri og skýrri framsetningu gagna.
Húsnæðisáætlanir
Húsnæðisáætlanir eru lykilverkfæri sveitarfélaga og stjórnvalda til að tryggja að til staðar sé nægjanlegt, fjölbreytt og viðeigandi húsnæði í takt við samfélagslegar þarfir og þróun. Vandaðar húsnæðisáætlanir styðja við skipulag byggðar, bæta lífsgæði og tryggja að samfélög geti vaxið á skynsaman hátt.
Við gerð húsnæðisáætlana er lögð áhersla á að kortleggja stöðu og þróun húsnæðismarkaðar, meta þörf eftir mismunandi íbúahópum og skilgreina markmið og aðgerðir til að mæta þeirri þörf. Meðal þess sem húsnæðisáætlun getur haft áhrif á er þróun skipulags, framboð og úthlutun lóða, uppbygging skólahúsnæðis, mótun þjónustu fyrir eldri borgara o.fl.
VSÓ hefur mótað verklag sem tryggir vandaða og skjóta vinnu við gerð húsnæðisáætlana og hefur gert slíkar áætlanir fyrir bæði minni og stærri sveitarfélög víða um land.
Landfræðileg upplýsingakerfi (GIS)
Landupplýsingakerfi (GIS) eru lykiltæki í greiningu, skipulagi og miðlun gagna sem tengjast staðbundnum aðstæðum. Með GIS-tækni er hægt að samþætta gögn úr ólíkum áttum, búa til sjónræna framsetningu, bera saman valkosti og styðja við gagnadrifna og rökstudda ákvarðanatöku í verkefnum.
Hjá VSÓ veitum við fjölbreytta GIS þjónustu við greiningar á landnotkun, innviðum og landfræðilegum aðstæðum, gerð sérsniðinna kortagrunna og gagnalaga t.d fyrir skipulagsvinnu og umhverfismat, staðarvalsgreiningar, vistfræðilegar greiningar o.fl. Við nýtum öflugar stafrænar lausnir og sérhæfðan hugbúnað við greiningu og framsetningu og sé þess óskað eru landupplýsingar birtar í vefsjá þar sem þær eru settar fram á gagnvirkan og aðgengilegan hátt – þannig að notendur geti skoðað kort og nálgast gögn og greiningar beint í vafra.
Leyfisveitingar
Það er mismunandi eftir aðstæðum hvaða leyfi þarf til að hefja starfsemi eða framkvæmdir. Fjölmörg fyrirtæki þurfa að sækja um starfsleyfi til Heilbrigðiseftirlitsins, Umhverfisstofnunar eða Matvælastofnunar og fyrir orkuvinnslu þarf rannsóknarleyfi, nýtingarleyfi og virkjunarleyfi.
Ef aðstæður kalla á það getur einnig þurft að sækja um leyfi fagstofnana t.d. ef framkvæmdir kalla á rask á fornleifum, skógum eða veiðivötnum og einnig ef framkvæmdir eru innan þjóðlenda, friðlýstra svæða eða ganga út í sjó.
VSÓ Ráðgjöf veitir þjónustu og faglega ráðgjöf við að sækja um margskonar leyfi í tengslum við mannvirkjagerð, rannsóknir og rekstur – með það að markmiði að tryggja skýr samskipti við leyfisveitendur og lágmarka töf eða áhættu í tengslum við áætlanir og framkvæmdir.
Mat á umhverfisáhrifum
Mat á umhverfisáhrifum er ferli þar sem metið er á kerfisbundinn hátt þau áhrif sem framkvæmd eða skipulag getur haft á náttúru, samfélag og umhverfi. Marmiðið er að allar ákvarðanir um uppbyggingu séu teknar á upplýstum grunni og með hagsmuni komandi kynslóða í huga.
Við framkvæmd matsins er framkvæmdin greind með tilliti til hvaða áhrif kunna að verða, hver alvarleiki þeirra er og hvaða mótvægisaðgerðir geta dregið úr neikvæðum áhrifum. Í ferlinu eru einnig skoðaðir mismunandi valkostir framkvæmdar og möguleg valkostagreining. Ferlið felur jafnframt í sér víðtækt samráð við hagsmunaaðila og almenning.
Hjá VSÓ bjóðum við upp á heildstæða þjónustu í mati á umhverfisáhrifum, allt frá matsskyldufyrirspurnum til fullgerðra umhverfismatsskýrslna. Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, trausta gagnasöfnun og lausnamiðaða nálgun.
Neyðarstjórnun
Neyðarstjórnun snýst um að tryggja skjótan og markvissan viðbúnað við óvæntum atvikum sem geta ógnað öryggi fólks, eigna eða umhverfis. Með vandaðri neyðarstjórnun má lágmarka tjón, vernda líf og tryggja samfellu í starfsemi – hvort sem um ræðir náttúruhamfarir, slys, mengunaróhöpp eða aðrar vágerðir.
Gerðar eru viðbragðsáætlanir, áhættumat og verklagsreglur fyrir ólík atvik en neyðarstjórnun nær þó ekki aðeins til viðbragða heldur einnig til forvarna og endurreisnar. Viðbragðsáætlanir og þjálfun starfsmanna tryggja skjótari og markvissari viðbrögð þegar neyð skapast. Mikilvægt er einnig að neyðarskipulag fyrirtækja og stofnana sé aðlagað að skipulagi almannavarna, til að tryggja skjót og samræmd viðbrögð.
VSÓ býður upp á heildstæða ráðgjöf í neyðarstjórnun sem getur jafnt nýst fyrir opinbera aðila ríkis og sveitarfélaga, almannavarnir, einkaaðila og félagasamtök.
Skipulagsgerð
Skipulagsgerð mótar ramma byggðar og innviða til framtíðar. Hún leggur grunn að vexti og þróun sveitarfélaga, skilgreinir landnotkun og tryggir að ný uppbygging verði í sátt við samfélagið og umhverfið. Lögð er áhersla faglega stefnumótun sem m.a. tekur mið af þörfum íbúanna, þróun atvinnulífs, sjálfbærri nýtingu auðlinda, góðu aðgengi og samgöngum ásamt náttúruvernd og vistvænum lausnum. Nýttar eru stafrænar lausnir og landupplýsingakerfi til að greina aðstæður, styðja við ákvarðanatöku og miðla gögnum á aðgengilegan hátt.
Skipulagsmál eru þverfaglegur málaflokkur sem krefjast þess að að þeim komi fjölbreyttur hópur sérfræðinga. VSÓ hefur yfir að ráða öflugu teymi með breiðan bakgrunn og margvíslega fagþekkingu. Við vinnum að skipulagsgerð á öllum stigum skipulags – aðalskipulags, deiliskipulags, rammaskipulags og svæðisskipulags – allt frá stefnumótun og greiningu til útfærslu og útgáfu skipulagsgagna.
Staðarval
Val á réttum stað fyrir fjárfestingu og uppbyggingu er lykill að árangri. Rétt staðarval fyrir starfsemina er forsenda þess að hún þrífist vel og þjóni hlutverki sínu sem best. Jafnframt getur aðgengi að þjónustu, innviðum og samgöngukerfum haft mikil áhrif á staðarvalið sem og hagkvæmni staðsetningarinnar fyrir viðskiptavini, starfsfólk o.fl. notendur. Einnig eru staðarvalsgreiningar mikilvægar þar sem val milli staðsetninga hefur áhrif á kostnað, rekstur eða leyfisveitingar.
Hvort sem um ræðir stofnanir, atvinnustarfsemi, umferðarmannvirki eða sérhæfða innviði er mikilvægt að greina vandlega hvaða staðsetning hentar best útfrá bæði hagnýtum, samfélagslegum og umhverfislegum forsendum.
Sérfræðingar VSÓ búa yfir fjölþættri reynslu við staðarval og valkostagreiningu. Við nýtum stafrænar aðferðir og landupplýsingakerfi (GIS) við greiningarvinnu og samanburð valkosta og höfum hagnýtni og umhverfisábyrgð að leiðarljósi.
Umhverfisúttektir og mengunarmælingar
Umhverfisúttektir og mengunarmælingar eru gerðar m.a. til að greina ástand umhverfis, meta áhrif starfsemi og fylgjast með breytingum yfir tíma. Slíkar úttektir nýtast jafnt fyrir leyfisveitingar, eftirlit, áætlanagerð og ábyrga umhverfisstjórnun – hvort sem um er að ræða framkvæmdir, rekstur, náttúruvernd eða stefnumótun. Mengunarmælingar eru einnig mikilvægur þáttur í eftirfylgni og reglubundnu eftirliti. Þær tryggja að starfsemi haldist innan marka og að brugðist sé við frávikum eða áhættu snemma.
Við bjóðum upp á þjónustu og ráðgjöf í tengslum við umhverfisúttektir og mengunarmælingar m.a. við umhverfisúttektir framkvæmda, jarðvegsmælingar og mat á grunnvatnsástandi, umhverfisvöktun, gerð umhverfishandbóka, grænt bókhald og samantekt umhverfisupplýsinga. Sérfræðingar VSÓ hafa víðtæka reynslu af mengunarmælingum, gerð úttekta og handbóka.
Úrgangsstjórnun
Góð úrgangsstjórnun snýst ekki einungis um að farga úrgangi heldur að stýra flæði efna með skilvirkum hætti með það að markmiði að draga úr myndun úrgangs, stuðla að endurnýtingu og tryggja örugga meðhöndlun þess sem ekki nýtist. Með markvissri úrgangsstjórnun má bæta umhverfisárangur verkefna og draga úr rekstrarkostnaði ásamt því að uppfylla lagakröfur og samfélagslegar væntingar.
Við veitum faglega ráðgjöf við úrgangsstjórnun fyrir bæði opinbera aðila og einkaaðila þ.á.m. endurnotkunar- og niðurrifsáætlanir, leiðbeiningar og handbækur um úrgangsmeðhöndlun, útboð vegna sorphirðu, sorpflutnings og flokkunar ásamt stefnumótunarvinnu og áætlanagerð í úrgangsmálum.
Öryggisstjórnun og vinnuvernd
Öryggisstjórnun snýst um að tryggja öruggt starfsumhverfi, draga úr áhættu og bregðast rétt við þegar atvik verða er varða öryggismál og heilsu starfsfólks eða notenda. Ábyrg öryggisstjórnun á ekki aðeins við í hættulegum iðnaði heldur er hún grundvöllur í allri ábyrgri starfsemi. Með markvissri greiningu, skýrum verklagsreglum og stöðugri endurskoðun má fyrirbyggja óhöpp, vernda fólk og eignir og stuðla að góðum rekstri.
VSÓ veitir framkvæmda- og rekstraraðilum m.a. ráðgjöf við áhættugreiningu og áhættumat, vinnustaðaúttektir, uppsetningu heilbrigðis- og öryggisstjórnunarkerfa, gerð neyðaráætlana og öryggishandbóka, ÖHU eftirlit á framkvæmdasvæðum o.fl. VSÓ Ráðgjöf er viðurkenndur þjónustuaðili á sviði vinnuverndar hjá Vinnueftirliti ríkisins.
Tengiliðir
Nánari upplýsingar um Umhverfi og skipulag veita:

Stefán Gunnar Thors
Sviðsstjóri Umhverfis og skipulags

Erla Björg Aðalsteinsdóttir
Fagstjóri Umhverfismats

Guðný Káradóttir
Teymisstjóri Grænu leiðarinnar