byggðatækni
Frá dýpstu lögum til yfirborðs
Byggðatækni felur í sér tæknilega hönnun innviða sem eru forsenda þess að byggð geti þróast á skilvirkan og hagkvæman hátt. Sviðið spannar fjölbreytt verkefni þar sem samspil neðanjarðarinnviða og yfirborðs er lykilatriði – allt frá hönnun vega og gatna, veitukerfa og fráveitu, yfir í jarðtæknilegar greiningar, landmælingar og mótun landslags. Áhersla er lögð á vandaða og áreiðanlega útfærslu inniviða sem þurfa að standast kröfur nútímans um öryggi, virkni og rekstrarhagkvæmni.
Við nálgumst hvert verkefni með heildarsýn í huga þar sem hugað er að samhengi allra þátta, ofan sem neðan jarðar. Með traustri þekkingu, nýjustu hugbúnaðarlausnum og nánu samstarfi við verkkaupa og hagaðila tryggjum við hönnun sem stenst bæði kröfur dagsins í dag og framtíðar.
Blágrænar ofanvatnslausnir
Með notkun vistvænna blágrænna ofanvatnslausna er ofanvatni veitt niður í jarðveginn um gegndræp yfirborð t.d. í regnbeð eða á græn svæði. Jarðvegurinn og gróðurinn hreinsar ofanvatnið af óhreinindum og annarri mengun. Í deiliskipulagsskilmálum eru æ oftar sett skilyrði um að yfirborðsvatn og regnvatn sem fellur til á svæðinu verði meðhöndlað með blágrænum ofanvatnslausnum.
Grunnmarkmiðið er að standa þannig að hönnun og uppbyggingu innviða að sem mest sé líkt eftir náttúrulegri hringrás vatns og upphaflegur vatnsbúskapur uppbyggingarsvæðisins sé varðveittur sem best.
ÍþrÓttavellir
Við hönnun íþróttavalla skipta gæði undirbúningsvinnu og tæknilegar útfærslur sköpum fyrir endingu, öryggi og notagildi vallarins. Hvort sem um ræðir knattspyrnuvelli eða frjálsíþróttasvæði þarf að huga að öllum lögum vallarins, allt frá jarðvegi og burðarlögum upp í yfirborðsefni og tæknikerfi.
VSÓ hefur víðtæka reynslu af áætlanagerð, hönnun, útboðum, framkvæmdaeftirliti og annarri ráðgjöf við gerð grasvalla, gervigrasvalla, frjálsíþróttavalla, sparkvalla, innanhússvalla o.fl. Verkefnin fela í sér fjölbreytilega hönnunarþætti s.s. jarðvinnu og uppbyggingu undirlags, snjóbræðslukerfi, rafkerfi, yfirborðsfrágang, vatnsúðakerfi, vallarlýsingu, val á búnaði o.fl.
Jarðtækni
Jarðtæknihönnun er lykilforsenda þess að hverskonar mannvirki standi traust og örugg á sínum grunni – hvort sem um ræðir húsbyggingar, umferðarmannvirki eða innviði.
VSÓ hefur yfir að ráða öflugu teymi sérfræðinga á sviði jarðtækni sem búa yfir mikilli faglegri reynslu hvað varðar jarðtæknilega hönnun og ráðgjöf fyrir hverskyns mannvirkjagerð, allt frá smærri jarðvinnuframkvæmdum til stórra innviðaframkvæmda. Teymi VSÓ byggir reynslu sína á fjölda ólíkra verkefna, bæði á Íslandi og í Noregi, sem skapar þeim víðtæka þekkingu á fjölbreyttum jarðvegsaðstæðum og aðlögun byggingartæknilegra lausna og úrræða að þeim.
Landmælingar
Vandaðar landmælingar tryggja að mannvirki séu byggð á réttum stað, í réttum hæðum og í samræmi við hönnun. Við landmælingar er safnað gögnum um lögun, hæðir og staðsetningar lands og mannvirkja með mikilli nákvæmni. Gögnin eru síðan nýtt í hönnun og við byggingarframkvæmdir.
VSÓ annast sérhæfða landmælingaþjónustu fyrir sína viðskiptavini en landmælingar og úrvinnsla landmælingagagna kemur einnig við sögu í fjölmörgum verkefnum þvert á fagsvið innan fyrirtækisins – bæði við hönnun og framkvæmdaeftirlit. Við höfum yfir að ráða öflugum tækjum til landmælinga þ.á.m. alstöð, dróna og GPS-mælitæki. Beitt er fullkomnasta hugbúnaði til úrvinnslu mæligagna s.s. gerð landlíkana, magnmælinga o.s.frv.
Landslagshönnun
Landslagshönnun snýst um að móta útivistarsvæði, opin svæði og umhverfi mannvirkja með það að markmiði að skapa vandað og notendavænt umhverfi. Þetta felur ekki aðeins í sér fagurfræðilega útfærslu heldur einnig tæknilega hönnun sem tengist regnvatnsstýringu, landmótun, aðgengi, lýsingu og gróðri. Vel útfærð landslagshönnun styður við virkni og ásýnd byggðar – hvort sem um er að ræða opin svæði í þéttbýli, skólalóðir, atvinnulóðir, íþróttasvæði eða náttúruleg útivistarsvæði.
Við landslagshönnun vinnum við með náttúrulegar aðstæður og mannlega hegðun í sameiningu. Lögð er áhersla á að skapa lausnir sem eru bæði endingargóðar og viðhaldsvænar, en einnig notalegar og aðlaðandi fyrir fólk.
Vegir, götur og stígar
Vegir, götur og stígar tengja saman byggð, styðja við daglegt líf og móta ásýnd umhverfisins. Þess vegna krefst hönnun og gerð slíkra innviða bæði tæknilegrar nákvæmni og skýrra forsendna sem taka mið af umferð, öryggi, aðgengi og ásýnd. Hvort sem um ræðir stofnvegi, íbúðargötur, hringtorg, gatnamót, hjólastíga eða gönguleiðir, þarf að tryggja að frágangur, virkni og öryggi mannvirkisins uppfylli kröfur notenda og samfélags.
Við leggjum áherslu á að hönnunin falli vel að umhverfi, sé rekstrarvæn og uppfylli ströngustu öryggiskröfur. Með samvinnu við hagaðila tryggjum við hagkvæmar og endingargóðar lausnir sem bæta hreyfanleika og upplifun allra sem ferðast um byggðina.
Veitukerfi
Þrátt fyrir að veitukerfi séu lítið sýnileg á yfirborði þá eru þau meðal mikilvægustu og flóknustu mannvirkja nútímasamfélags. Þau flytja hreint vatn, losa fráveitu, miðla orku og tryggja tengingar fyrir samskipti og tækni. Við hönnun veitukerfa er lagt upp með nákvæma greiningu á þörfum svæðis, burðarþoli jarðvegs, legu annarra innviða og framtíðarnotkun. Áætla þarf legu, dýpt, halla og lagnaleiðir með hliðsjón af bæði flæði, sjálfrennsli og viðhaldsþörf. Hver veituflokkur hefur sínar tæknilegu kröfur – hvort sem um ræðir vatnsveitu, fráveitu, hitaveitu, kaldavatn, regnvatn, ljósleiðara eða rafmagn.
VSÓ hefur víðtæka reynslu í hönnun allra helstu veitukerfa en auk hefðbundinnar veituhönnunar höfum við einnig annast sérhæfða ráðgjöf í fráveitumálum sveitarfélaga með umhverfismál og hagkvæmni að leiðarljósi.
Tengiliðir
Nánari upplýsingar um Byggðatækni veita:

Árni Snær Kristjánsson
Sviðsstjóri Byggðatækni

Vilhjálmur Árni Ásgeirsson
Verkefnastjóri Byggðatækni