samgöngur

fyrir fólk á ferð

Á Samgöngusviði er unnið að verkefnum sem tengjast umferðartæknilegri þróun, hönnun og ráðgjöf fyrir fjölbreytta samgöngumáta þ.á.m. almenningssamgöngur, einkabíla,  hjólaumferð og gangandi vegfarendur.

Starfsfólk VSÓ Ráðgjafar hefur víðtæka reynslu á þessu sviði og hefur yfir að ráða nýjustu tækni og hugbúnaði til hönnunar og áætlanagerðar.

Verkefnin spanna m.a. samgöngugreiningar, umferðarspár, umferðaröryggismál, hermun umferðar og afkastagetu, forhönnun gatna og gatnamóta, hönnun umferðarljósastýringa o.fl.

Almenningssamgöngur

Það er á margan hátt bæði flóknara og erfiðara að skipuleggja almenningssamgöngur en aðrar samgöngur þar sem um margbrotið val á ferðamáta og ferðaleið er að ræða. Taka þarf með í reikninginn hraða, kostnað, fjölda skiptinga, öryggi og þægindi og ekki nauðsynlega í þessari forgangsröð. Það er því grundvallaratriði að vanda skipulag almenningssamgangna og hafa til þess rétt verkfæri og þekkingu.

Meðal viðfangsefna VSÓ á þessu sviði má nefna almenningssamgöngulíkön, hagkvæmnisathuganir, skipulag og hönnun forgangsakreina, stefnumótun í samgöngumálun, hönnun skiptistöðva og útboð á akstursþjónustu.

Bílastæði

Við skipulagningu nýrra eða endurskipulagðra hverfa, svæða og byggingarreita getur fjöldi og útfærsla bílastæða haft mikil áhrif á umferðarmynstur, aðgengi og umhverfi. Tryggja þarf skynsamlega nýtingu rýmis og styðja við heildarsýn í samgöngumálum og þróun byggðar í hverju tilfelli.

Við bílastæðagreiningu og skipulag bílastæða metum við þörf fyrir bílatæði út frá staðsetningu, starfsemi og ferðavenjum ásamt t.d. möguleikum á deilibílastæðum, bílageymslum, rafhleðslu, aðgangsstýringu og hagkvæmri nýtingu stæða – þar sem tekið er tillit til umhverfis, aðgengis, öryggis og annarra ferðamáta.

Gangandi og hjólandi umferð

Með aukinni áherslu á vistvænni og heilbrigðari ferðavenjur hefur notkun og gæði stíga aukist og virkir samgöngumátar, s.s. að ganga eða hjóla, orðið raunhæfur valkostur fyrir fleiri. Til að auka notkun og öryggi vegfarenda er mikilvægt að vandlega sé staðið að skipulagi og hönnun göngu- og hjólastíga með gott aðgengi og tengingar að leiðarljósi.

Þjónusta VSÓ nær m.a. til skipulagningar og hönnunar göngu- og hjólastíga, greininga á þörfum fyrir hjólastæði, gerð ferðavenjukannana og umferðarlíkana til að spá fyrir um þróun virkra samgöngumáta og aðra áætlanagerð.  Áhersla er lögð á aðgengi fyrir alla þar sem tekið er mið af þörfum og hreyfanleika ólíkra notendahópa.

Hljóðvist

Góð hljóðvist hefur afgerandi áhrif á vellíðan og upplifun fólks af nærumhverfi sínu.  Að hindra óæskileg hljóðáhrif s.s. frá umferð, atvinnustarfsemi eða öðrum hávaðavöldum minnkar streitu, dregur úr svefntruflunum, bætir aðstæður til útivistar og eykur gæði byggðar.  

Í samstarfi við sérhæfða ráðgjafa á þessu sviði býður VSÓ upp á alhliða hljóðráðgjöf þar sem notast er við hágæða mælitæki og hugbúnað til greininga. 

Viðfangsefnin ná m.a. til kortlagningar hávaða, hönnunar hljóðveggja og hljóðmana, hljóðmælinga og ráðgjafar um hávaðadreifingu ásamt hljóðvistarhönnun bygginga og rýma.

umferðarspár

Áreiðanlegar umferðarspár eru nauðsynlegt verkfæri við stefnumótun, skipulagsgerð og hönnun umferðarmannvirkja – bæði til styttri og lengri tíma. Þær veita innsýn í hvernig umferð mun þróast við mismunandi forsendur s.s. breytingar á vegakerfi, byggingaráform, þróun atvinnuvega eða áherslubreytingar í vali ferðamáta.

Starfsfólk VSÓ hefur viðamikla reynslu á þessu sviði. Meðal viðfangsefna eru umferðarspár fyrir svæðis-, aðal- og deiliskipulög, ný uppbyggingarsvæði og umferðarmannvirki.  Einnig hefur VSÓ unnið umferðarlíkan fyrir bæði SV-hornið og landsbyggðina ásamt sérhæfðari líkönum t.d. fyrir þungar bifreiðar á landsvísu, til að spá fyrir um rýmingartíma hverfa og svæða, sem og líkön fyrir ólíka ferðamáta og breyttar ferðavenjur.

umferðarstjórnun

Umferðarstjórnun (e. mobility management) felur í sér að móta ferðavenjur með markvissum aðgerðum sem stuðla að betri nýtingu samgöngukerfisins og vistvænni valkostum. Í stað þess að einblína eingöngu á innviðauppbyggingu er áhersla lögð á hegðun, hvata og samhæfingu – með það að markmiði að draga úr umferð, minnka álag á vegakerfi og bæta lífsgæði. Ávinningurinn er m.a. minni þörf fyrir vegaframkvæmdir, minni eldsneytisnotkun og mengun, betra heilsufar og aukið umferðaröryggi.

VSÓ Ráðgjöf hefur unnið ýmiskonar rannsóknarskýrslur um umferðarstjórnun og í samræmi við niðurstöður unnið að því að innleiða umferðarstjórnun í m.a. skipulagsáætlanir, hjólreiðaáætlanir og samgönguskipulag.  

Umferðartækni og umferðarhermun

Við nýhönnun, endurhönnun eða breytingar á notkun umferðarmannvirkja og hverfa er mikilvægt að greina áhrifin á þjónustustig, afkastagetu og öryggi vegfarenda.  T.d. er með umferðarhermun hægt að líkja eftir raunumferð við mismunandi forsendur og meta áhrif breytinga á flæði, tafir og öryggi – bæði í nútíð og til framtíðar.

Meðal viðfangsefna sérfræðinga VSÓ í þessum efnum er mat á þjónustustigi og afkastagetu, greiningar á fleytitíð, samanburður mismunandi lausna fyrir umferðarflæði og gatnamót, auk umferðarhermunar af ýmsu tagi fyrir fjölbreytta samgöngumáta.

umferðaröryggi

Að auka umferðaröryggi til að draga úr slysum, ekki síst alvarlegum slysum og banaslysum, er mikill ávinningur fyrir samfélagið. Mikilvægt er að skapa öruggt umhverfi fyrir alla vegfarendur, óháð aldri þeirra, ferðamáta eða öðrum aðstæðum.

Þjónusta VSÓ m.t.t. umferðaröryggis nær m.a. til umferðaröryggisáætlana fyrir sveitarfélög, umferðaröryggismats innviða og slysa- og svartblettagreininga þar sem svæði með háa slysatíðni og sérstaka áhættuþætti eru skoðuð sérstaklega. Einnig vinnum við stöðumat á minni svæðum t.d. við skóla, þjónustukjarna eða gatnamót ásamt áætlunum um úrbætur og forgangsröðun aðgerða.

Tengiliðir

Nánari upplýsingar um Samgöngur veita:

Smári Ólafsson

Smári Ólafsson

Sviðsstjóri Samgangna

Davíð Guðbergsson

Davíð Guðbergsson

Samgönguverkfræðingur