tæknikerfi

Hagkvæmni, öryggi og nútímaþægindi

Hönnun og ráðgjöf vegna allra þeirra tæknikerfa sem nútímamannvirki þurfa að fela í sér er viðfangsefni sviðs Tæknikerfa – rafkerfi, lýsing, lagnakerfi og loftræsikerfi sem tryggja öryggi, þægindi og hagkvæmari rekstur mannvirkis. Lögð er áhersla á samhæfðar lausnir þar sem kerfin eru hönnuð í samræmi við rými, notkun og framtíðarþarfir.

Við vinnum að verkefnum allt frá frumhönnun og kerfisvalkostum til fullnaðarhönnunar og ráðgjafar á byggingartíma. Í verkefnunum felst meðal annars ráðgjöf um afkastagetu, orkunýtingu, öryggiskröfur og sjálfbærni – hvort sem um er að ræða nýbyggingar, viðhald, endurbætur eða endurnýjun kerfa í eldra húsnæði.

Gagnastýring og gagnaumsjón

Gagnastýring og gagnaumsjón snýst um að halda utan um upplýsingar sem mynda grunn að húsrýmisáætlun sem skilar vandaðri hönnun, skilvirkri framkvæmd og markvissum rekstri mannvirkja. Skráðar eru m.a. skilgreindar þarfir notenda, ásamt forsendum og niðurstöðum hönnunar, tæknilegum upplýsingum og búnaðarkröfum svo hægt sé að fylgja þeim eftir frá upphafi hönnunar til loka framkvæmda.

VSÓ veitir faglega þjónustu við gagnastýringu og gagnaumsjón þar sem markmiðið er að tryggja rekjanleika, samræmi og yfirsýn yfir upplýsingar frá upphafi hönnunar til verkloka – og áfram inn í rekstur byggingarinnar.

Hússtjórnarkerfi og iðnstýrikerfi

Tæknikerfi nútímabygginga og iðnaðarmannvirkja verða sífellt flóknari og krefjast samhæfðrar, nákvæmrar og áreiðanlegrar stjórnunar. Með réttri hönnun og innleiðingu á hússtjórnarkerfum (BMS) og iðnstýrikerfum (PLC/SCADA) má tryggja bæði betri nýtingu auðlinda og aukið rekstraröryggi.  Fjarstýring þessara kerfa er jafnframt möguleg bæði með beinlínutengingu og netlausnum.

Við sérhæfum okkur í ráðgjöf, hönnun og samþættingu slíkra kerfa þar sem markmiðið er að veita notendum fulla yfirsýn yfir rekstur mannvirkja, hvort sem um ræðir loftræstingu, hitakerfi, rafkerfi, öryggiskerfi, lýsingu eða sérhæfð iðnaðarferli – hvort sem um er að ræða nýbyggingar eða endurbætur á eldri mannvirkjum.

Lagnakerfi og loftræsikerfi

Vel hönnuð lagnakerfi og loftræsikerfi tryggja heilnæmt inniloft, rétta hitastýringu, skilvirka orkunýtingu og örugga dreifingu vatns og frárennslis – hvort sem um ræðir íbúðarhúsnæði, opinberar byggingar eða sérhæfð iðnaðarmannvirki.

Við bjóðum upp á heildstæða verkfræðiráðgjöf við hönnun og útfærslu lagna- og loftræsikerfa, allt frá fyrstu hugmynd að framkvæmd. Lögð er áhersla á vistvænar og hagkvæmar lausnir sem uppfylla kröfur um loftgæði, raka-, hita- og hljóðstýringu. Hvort sem um er að ræða hefðbundin vatns- og frárennsliskerfi, hitakerfi, snjóbræðslu, loftræsingu, kælikerfi, slökkvikerfi (sprinkler), sundlaugakerfi eða önnur lagnakerfi.

Lýsingarhönnun

Rétt birta og rétt hönnun lýsingar skiptir miklu máli fyrir líðan fólks hvort sem er á vinnustað, í tómstundum eða á heimilum. Einnig er val og staðsetning á lampabúnaði ekki eingöngu tæknilegt úrlausnarefni heldur þarf jafnframt að taka tillit til þess að smekkur fólks mismunandi. Að auki eru bæði dagsbirta sem og samspil ljóss og skugga mikilvægur þáttur í lýsingarhönnun.

Með víðtækri þekkingu, reynslu og nýjasta búnaði til hönnunar á lýsingu, tryggjum við smekklegar og hagkvæmar lausnir sem hæfa hverju tilviki. Sérfræðingar VSÓ reikna út birtustig lýsingarinnar með sérhæfðum lýsingarforritum og einnig með því að koma með myndrænar tillögur um hvernig stemmningu lýsingin mun skapa.

Orkuútreikningar bygginga

Með markvissum orkuútreikningum má greina helstu áhrifaþætti í orkunotkun byggingar og meta hvernig mismunandi hönnunarákvarðanir, einangrun, gluggar, loftræsing og tæknikerfi spila saman og hvernig hægt er að hámarka orkunýtingu byggingarinnar.

Sérfræðingar VSÓ nýta byggingarhermiforrit til að framkvæma dýnamíska orkuútreikninga og meta frammistöðu byggingarhönnunar m.t.t. orkunotkunar og innivistar. Með því er hægt að tryggja skilvirka útfærslu á byggingarhjúp og tæknikerfum bygginga. Meðal viðfangsefna eru orkuútreikningar vegna hönnunar, viðhaldsverkefna, umhverfisvottana, greiningar á innivist og dagsbirtu og fyrir „passivhús“.

Rafkerfi

Rafkerfi gegna lykilhlutverki í öllu daglegu lífi og í hverju mannvirki. Vel hönnuð rafkerfi tryggja örugga og stöðuga rafmagnsdreifingu, sveigjanlega notkun og tengingu við fjölbreytilegan tæknibúnað nútímans.

Sérfræðingar VSÓ hafa mikla reynslu og þekkingu á hönnun og ráðgjöf á sviði rafkerfa og leggja metnað sinn í að fylgjast vel með öllum tækniframförum sem auka gæði og hagkvæmni lausna – hvort sem um ræðir almenn rafkerfi, síma- og tölvulagnir, viðvörunarkerfi, myndavélaeftirlitskerfi, aðgangsstýringar, ljósastýringar, hátalarakerfi eða annað.

Öryggiskerfi

Öryggiskerfi eru óaðskiljanlegur hluti af nútímabyggingum og lykilþáttur í að vernda bæði fólk, búnað og eignir. Slík kerfi ná yfir fjölbreytta þætti – allt frá aðgangsstýringu, myndavélakerfum og þjófavörn til brunaviðvörunarkerfa og neyðarlýsingar. Rétt hönnun og samþætting tryggja ekki aðeins öryggi heldur líka skilvirka og áreiðanlega starfsemi húsnæðis.

Við sérhæfum okkur í ráðgjöf og hönnun öryggiskerfa sem eru sniðin að þörfum hvers verkefnis. Viðfangsefni spanna m.a. hönnun brunaviðvörunarkerfa, innbrotaviðvörunarkerfa, sjúkrakallkerfa, eftirlitsmyndavélakerfa og slökkvikerfa. 

Tengiliðir

Nánari upplýsingar um Tæknikerfi veita:

Alma Pálsdóttir

Alma Pálsdóttir

Sviðsstjóri Tæknikerfa

Einar Freyr Hilmarsson

Einar Freyr Hilmarsson

Fagstjóri Rafkerfa

Ingólfur Th. Bachmann

Ingólfur Th. Bachmann

Fagstjóri Lagnakerfa