Hljóðvist

Hljóð hefur afgerandi áhrif á upplifun fólks á nærumhverfi sínu og eru sífellt gerðar meiri kröfur til góðrar hljóðvistar. VSÓ  veitir víðtæka þjónustu á þessu sviði. Notast er við hágæða hugbúnað til að kortleggja útbreiðslu hávaða og prófa mismunandi útfærslur á skermun hávaða. Í samstarfi við Trivium Ráðgjöf komum við að hljóðmælingum með hljóðmælitækjum frá Norsonic og bjóðum upp á alhliða hljóðráðgjöf.

Meðal viðfangsefna VSÓ á þessu sviði eru:

  • Almenn hljóðvistarráðgjöf
  • Kortlagning hávaða
  • Hönnun hljóðveggja og hljóðmana
  • Hljóðmælingar og ráðgjöf um hávaðadreifingu
  • Hljóðvistarhönnun bygginga og rýma
  • Hljóðeinangrunarhönnun

Nánari upplýsingar veitir:

Smári Ólafsson 
Sviðsstjóri samgangna
Umferðar- og samgönguverkfræðingur M.Sc.
smari@vso.is
s: 585 9187