4. febrúar 2020

Nýr framkvæmdastjóri tekur við störfum hjá VSÓ 

Runólfur Þór Ástþórsson verkfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri VSÓ Ráðgjafar frá 1. febrúar 2020. Tekur hann við af Grími Jónassyni sem óskaði eftir að láta af störfum sem framkvæmdastjóri eftir 15 ára farsælt starf.

Runólfur Þór Ástþórsson er 41 árs verkfræðingur með sérhæfingu í stjórnun framkvæmda og stundaði hann framhaldsnám í Kaupmannahöfn og við Háskólann í Reykjavík eftir útskrift sem iðnaðartæknifræðingur frá Tækniskóla Íslands árið 2002.  Runólfur hefur starfað hjá VSÓ Ráðgjöf frá árinu 2008 bæði hér á landi og í Noregi þar sem hann tók virkan þátt í uppbyggingu VSO Consulting AS en undanfarin misseri hefur hann starfað sem sviðsstjóri á burðarvirkjasviði VSÓ Ráðgjafar á Íslandi.

Grímur Jónasson mun áfram starfa hjá VSÓ, sinna þar ýmsum verkefnum og miðla af 35 ára reynslu sinni af verkfræðiráðgjöf.