VSÓ er framúrskarandi og til fyrirmyndar

 

Framúrskarandi fyrirtæki – Creditinfo

VSÓ er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á lista Creditinfo áttunda árið í röð.

Alls 896 fyrirtæki komust á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki árið 2022, eða um 2% af þeim fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagagaskrá, og er VSÓ Ráðgjöf eitt þeirra fyrirtækja sem komust á listann.

Fjárhags- og viðskiptaupplýsingafyrirtækið Creditinfo vinnur árlega ítarlega greiningu á fyrirtækjum skráðum á Íslandi og gefur út lista yfir frammúrskarandi fyrirtæki ársins. Einungis þau fyrirtæki sem uppfylla ströng skilyrði Creditinfo, að teknu tilliti til þátta sem varða rekstur þeirra og stöðu, komast á listann. Nánari upplýsingar um hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi má finna á síðu Creditinfo.

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri – Keldan og Viðskiptablaðið

VSÓ er í hópi fyrirmyndarfyrirtækja í rekstri á lista Keldunar og Viðskiptablaðsins fimmta árið í röð.
Keldan og Viðskiptablaðið taka árlega saman lista um Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri að því gefnu að fyrirtækin uppfylli þær forsendur sem gerðar eru. Nánari upplýsingar um Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri og forsendur fyrir því má finna á síðu Keldunar.