15. janúar 2022

Vesturlandsvegur (1) frá Hvalfjarðargöngum að Borgarfjarðarbrú – Frumdrög og vefsjá

VSÓ Ráðgjöf, fyrir hönd Vegagerðarinnar, vinnur að frumdrögum vegna breikkunar Vesturlandsvegar frá Hvalfjarðargöngum að Borgarfjarðarbrú. Í nýrri vefsjá má skoða fyrirhugaða framkvæmd og senda inn ábendingar sem fylgja munu frumdrögum inn á næstu stig hönnunar. 

Í myndbandi hér að neðan er jafnframt farið vel yfir frumdrög framkvæmdarinnar og virkni vefsjárinnar.

Vegurinn á milli Hvalfjarðarganga og Borgarness er einn fjölfarnasti vegur landsins utan höfuðborgarsvæðisins og hefur umferð á honum farið vaxandi síðustu ár. Á veginum eru nokkrir slæmir kaflar með tilliti til sjónlengda og slysatíðni en á fimm ára tímabili urðu 47 slys á kaflanum, þar af þrjú alvarleg.

VSÓ Ráðgjöf  vinnur að frumdrögum vegna breikkunar vegarins. Þar er gert ráð fyrir að breikka veginn í 2+1 veg, þar sem vegurinn mun skiptast á að vera tvöfaldur og einfaldur í sitt hvora áttina. Akstursstefnur verða aðskildar með vegriði og tengingum fækkað og þær gerðar öruggari.

Vefsjá þar sem skoða má þær tillögur sem koma fram í frumdrögunum má finna hér til hliðar.  Þegar komið er inn á vefsjána birtist lítill gluggi uppi í vinstra horni þar sem hægt er að velja ýmsa möguleika. Bornir hafa verið saman fjórir valkostir við uppbyggingu vegarins og eru þeir allir sýnilegir í vefsjánni. Sú tillaga sem sameinar helstu markmið framkvæmdarinnar er 1c. Lítið mál er að súmma inn og út á kortinu og skoða tillögurnar í smáatriðum.

Óskað er eftir ábendingum frá vegfarendum, sérstaklega íbúum á svæðinu. Hægt er að senda ábendingu í gegnum vefsjána með því að smella á „senda ábendingu“ uppi í hægra horni. Tekið verður tillit til ábendinganna á næstu stigum framkvæmdarinnar.

Framkvæmdin er á samgönguáætlun. Framkvæmdum verður skipt í áfanga og vonir standa til að heildarframkvæmdin klárist á tíu árum.

Í myndbandi hér til hliðar er farið vel yfir frumdrög framkvæmdarinnar og virkni vefsjárinnar.