Fjarðarfrost í Hafnarfirði, frystigeymsla

Ný frystigeymsla Eimskips við Hafnarfjarðarhöfn

Í verkefninu felst bygging nýrrar 10 þúsund tonna frystigeymslu við Hafnarfjarðarhöfn. Samanlögð stærð hússins er 7000 fermetrar og skiptist í tvo jafnstóra frystiklefa og 1200 fermetra afgreiðslu- og þjónusturými.  Til samanburðar má geta þess að frystigeymslan er þrisvar sinnum stærri en Sundafrost, frystigeymsla Eimskips í Sundahöfn.  Frystigeymslan var reist á óvenju stuttum tíma en aðeins liðu um 9 mánuðir frá því að byggingaframkvæmdir á lóðinni hófust og þar til fyrstu vörurnar voru teknar inn í fyrri frystiklefann af tveimur.

Hlutverk VSÓ í verkefninu:

  • Verkefnis- og hönnunarstjórn.
  • Framkvæmdaumsjón.
  • Framkvæmdaeftirlit.

Verktími: 2015-2016.

Verkkaupi: Eimskip.