Deiliskipulag Smárahvammsvegar

Í verkefninu felst athugun á umferðaröryggi og afköstum gatnamóta Smárahvammsvegar og Hlíðarsmára í tengslum við tillögu að deiliskipulagi fyrir Smárahvammsveg. Þann 26. október 2021 samþykkti Bæjarstjórn Kópavogs að auglýsa tillöguna og tekur hún mið af þeirri athugun.

Í tillögunni er akreinum fækkað og götur aðskildar með grænum svæðum og eyjum með steyptum kanti. Einnig verða vinstri beygjur leyfðar á öllum gatnamótum um op í miðeyju. Tillagan samræmist markmiðum um greiðar, öruggar og vistvænar samgöngur og fjölbreyttan ferðamáta.

Skoða má tillöguna nánar með því að smella hlekkina hér fyrir neðan. 

Deiliskipulag Smárahvammsvegar skipulagsuppdráttur.
Deiliskipulag Smárahvammsvegar skýringaruppdráttur.

Hlutverk VSÓ í verkefninu:

  • Gerð deiliskipulags.
  • Umferðartækni.

Verktími: 2021

Verkkaupi: Kópavogsbær