Ásgarður, gervigrasvellir í Garðabæ

Á íþróttasvæðinu við Ásgarð í Garðabæ, þar sem íþróttafélagið Stjarnan hefur sitt höfuðaðsetur, er í dag fótboltavöllur í fullri stærð og sex æfingavellir í mismunandi stærðum. Vellirnir eru allir með gervigrasi, snjóbræðslu og flóðlýsingu. VSÓ Ráðgjöf hefur frá upphafi komið að hönnun, áætlanagerð og framkvæmdaeftirliti vegna uppbyggingar, endurbóta og þróunar á svæðinu, þ.e.a.s.:

  • 2023: Endurnýjun vallarlýsingar á aðalvelli
    Hlutverk VSÓ: Verkefnastjórn, hönnun, kostnaðargreining og útboðsgögn.
  • 2018: Endurnýjun á gervigrasi aðalvallarins.
    Hlutverk VSÓ: Verkefnastjórn, hönnun, kostnaðargreining og útboðsgögn.
  • 2016: Endurbætur á gervigrasi aðalvallarins og stækkun í fulla stærð (8.064 m2) með nýju fjöðrunarlagi og endurnýjun á gervigrasi á tveim minni æfingavöllum.
  • Hlutverk VSÓ: Verkefnastjórn, hönnun, kostnaðargreining og útboðsgögn.
  • 2015: Framtíðarmöguleikar fyrir íþróttasvæðið.
    Hlutverk VSÓ: Gerð frumdraga.
  • 2012-2013: Endurbætur á aðal fótboltavellinum (8.200 m2) með nýju gervigrasi, fjöðrunarlagi og snjóbræðslukerfi.
    Hlutverk VSÓ: Hönnun og framkvæmdaeftirlit.
  • 2012: Nýr æfingavöllur (7.800 m2) þar sem gamla gervigrasið á aðal fótboltavellinum var flutt yfir á nærliggjandi völl.
    Hlutverk VSÓ: Hönnun og framkvæmdaeftirlit.
  • 2011-2012: Fótboltavöllur í hálfri stærð, lagfæring á gervigrasi.
    Hlutverk VSÓ: Hönnun og framkvæmdaeftirlit.
  • 2004: Nýr fótboltavöllur í fullri stærð (8.200 m2), annar í hálfri stærð (3.200 m2) ásamt tveim minni völlum (600 m2 hver).
    Hlutverk VSÓ: Öll verkfræðiþjónusta, þ.e. áætlanagerð, hönnun og framkvæmdaeftirlitVerkkaupi: Garðabær.

 

Verkkaupi: Garðabær