Öryggiskerfi

VSÓ Ráðgjöf hefur mikla og víðtæka reynslu varðandi öryggismál.  Mikil breidd er í hópi viðskiptavina og umfang verkefna hafa verið allt frá hönnun öryggiskerfa fyrir heimili til stærri verkefna s.s. spítala-, skóla-, verslunar- og skrifstofuhúsnæðis.  Fyrirtækið hefur á að skipa sérfræðingum sem hafa sérhæft sig í hönnun öryggiskerfa og ráðgjöf um öryggismál og leggja þeir kapp á að fylgjast vel með nýjungum bæði heima og erlendis.

Gott ástand brunavarna og annarra öryggismála í húsbyggingum er mikilvægur þáttur til að tryggja öryggi fólks bæði heima við og á vinnustað. Einnig hafa öryggismál bein áhrif á rekstraröryggi fyrirtækja. Mikilvægt er að taka tillit til þessara þátta strax á undirbúningsstigi framkvæmda til þess að ná fram hagkvæmum lausnum.

Meðal viðfangsefna VSÓ á sviði öryggismála má nefna:

  • Hönnun brunaviðvörunarkerfa.
  • Brunatæknileg hönnun bygginga.
  • Hönnun öryggis- og innbrotaviðvörunarkerfa.
  • Hönnun sjúkrakallkerfa.
  • Hönnun eftirlitsmyndavélakerfa.
  • Hönnun slökkvikerfa.
  • Vöktun og aðgangsstjórnun.
  • Úttekt á öryggismálum.
  • Gerð útboðsgagna, mat tilboða og verkeftirlit.

 

Nánari upplýsingar veitir Símon Unndórsson