Mannvirkjagerð

Virkjanir

Frá árinu 1998 hefur eftirlit með virkjanaframkvæmdum verið stór liður í starfsemi VSÓ Ráðgjafar. Upphafið má rekja til samstarfs við Lahmeyer International í Þýskalandi, þegar fyrirtækin voru ráðin til að sinna eftirliti með framkvæmdum við gerð Sultartangavirkjunar. Frá upphafi var lögð áhersla á öguð og skipulögð vinnubrögð við eftirlitið. Komið var upp gæðakerfi við Sultartanga sem síðan hefur verið í sífelldri þróun og endurskoðun.

VSÓ hefur annast eftirlit við neðangreindar virkjanaframkvæmdir:

  • Sultartangavirkjun
  • Vatnsfellsvirkjun
  • Búðarhálsvirkjun 1. áfanga
  • Endurbætur Þórisvatnsmiðlunar
  • Kárahnúkavirkjun- stöðvarhús

VSÓ Ráðgjöf hefur einnig sinnt umsjón og eftirliti með gerð háspennulína, vegagerð o.fl. í tengslum við ofangreindar framkvæmdir.

 

Brýr

Brúarhönnun er unnin í samstarfi við brúarhönnuði sem starfa á burðarvirkjasviði. VSÓ Ráðgjöf hefur sem dæmi  hannað neðangreindar göngubrýr á höfuðborgarsvæðinu.

  • Yfir Breiðholtsbraut við Norðlingaholt.
  • Yfir Vesturlandsveg í Mosfellsbæ.
  • Yfir Miklubraut við Rauðagerði, við Grundargerði og við Kringluna.
  • Yfir Hafnarfjarðarveg við Hraunsholt.

 

Nánari upplýsingar veitir Lárus Helgi Lárusson