3. maí 2022

Ný umferðaröryggisáætlun fyrir Stykkishólm

Stykkishólmur hefur gefið út umferðaröryggisáætlun fyrir árin 2021-2025 sem VSÓ vann fyrir sveitarfélagið. Samgöngustofa hefur undanfarin ár hvatt sveitarfélög til að gera áætlanir um umferðaröryggismál með það að markmiði að auka vitund forráðamanna sveitarfélaga og almennings um umferðaröryggismál og hefur, í samstarfi við Vegagerðina og Mannvit, tekið saman leiðbeiningar um gerð umferðaröryggisáætlana sveitarfélaga.  Vinna við umferðaröryggisáætlun Stykkishólms tekur mið af þeim leiðbeiningum auk reynslu VSÓ af gerð umferðaröryggisáætlana víðsvegar um landið.

Í umferðaröryggisáætlun Stykkishólms er lagt mat á núverandi stöðu umferðaröryggismála í sveitarfélaginu og lagðar fram tillögur til úrbóta. Verkefni eru mótuð úr þeim tillögum og þeim forgangsraðað. Lögð er áhersla á að rödd allra fái að heyrast og að tekið sé tillit til allra vegfarendahópa.  Alls voru 12 verkefni skilgreind sem forgangsverkefni og spanna þau framkvæmdir á borð við tilfærslu og endurbætur gangbrauta, endurbætur á lýsingu, eflingu vistvænna ferðamáta o.fl.

Umferðaröryggisáætlun Stykkishólms 2021-2025.


Nánari upplýsingar veitir:

Ragnar Þór Þrastarson 
Iðnaðar- og rekstrarverkfræðingur M.Sc.
ragnar@vso.is
s: 585 9208