22. desember 2020

Jóla- og nýjárskveðjur frá VSÓ Ráðgjöf

Starfsfólk VSÓ Ráðgjafar óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og heillaríks komandi árs, með kærri þökk fyrir samstarfið á liðnu ári.

Í tilefni jólanna styrkjum við hjá VSÓ nágranna okkar á kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni 1 með framlagi sem skiptir þá máli og kemur án vafa í góðar þarfir. Á kaffistofu Samhjálpar fær utangarðsfólk og aðrir aðstöðulausir morgunkaffi, meðlæti og heita máltíð í hádeginu alla daga ársins og þar borða um og yfir 180 manns hvern dag.

Í ár ákvaðum við einnig, í stað þess að vera með fjar-jólahlaðborð, að styrkja Fjölskylduhjálp sem nemur máltíð frá hverjum starfsmanni. Að auki höfum við síðustu ár styrkt Skálatún með kaupum í tengslum við jólagjafir til starfsfólks.

Á milli jóla og nýárs verður skiptiborð VSÓ lokað en við bendum á að hægt er að nálgast símanúmer og netföng starfsmanna hérna á síðunni. Skiptiborðið opnar aftur fimmtudaginn 4. janúar kl. 8:30.

Jólakveðjur,
Starfsfólk VSÓ.