26. janúar 2016

VSÓ meðal framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo 2015

Fjárhags- og viðskiptaupplýsingafyrirtækið Creditinfo vinnur árlega ítarlega greiningu á fyrirtækjum skráðum á Íslandi og gefur út lista yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins. Einungis þau fyrirtæki semuppfylla ströng skilyrði Creditinfo, að teknu tilliti til þátta sem varða rekstur þeirra og stöðu, komast á listann.

Alls 682 fyrirtæki komust á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki árið 2015, eða um 1,9% af þeim 35.842 fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá, og er VSÓ Ráðgjöf eitt þeirra fyrirtækja sem komust á listann.

VSÓ komst einnig á lista Creditinfo árið 2014.