Leturstęrš
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. > Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðakerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Þjónustulínur - Umhverfi og skipulag - Umhirða grænna svæða

Umhirða grænna svæða

 

Umhirðuáætlanir ná til lengri eða skemmri tíma og hafa áhrif á viðhald, þróun og rekstur grænna svæða. Þessar áætlanir eru mikilvægt stjórntæki þeirra sem hafa yfirumsjón með umhirðu grænna svæða, hvort sem er innan sveitarfélaga eða einstakra fyrirtækja. Umhirðuáætlanir byggja á fyrirfram skilgreindum umhirðuviðmiðum þar sem skilgreindir hafa verið þeir lykilþættir sem huga þarf að í umhirðunni. Umhirðuáætlanir eru hluti af ákveðnu ferli sem unnið er eftir og byggir það m.a á teikningum og loftmyndum, greiningu á svæðum og faglegu mati. Að loknu þessu ferli verður til mjög nákvæmt safn upplýsinga og yfirlit yfir þau grænu svæði sem áætlunin nær til. Umhirðuáætlunin inniheldur einnig stefnu í umhirðumálum til lengri tíma.

VSÓ Ráðgjöf hefur bæði séð um verkefnastjórn við gerð umhirðuáætlana og tekið að sér gerð þeirra í nánu samstarfi við verkkaupa. Einnig sinnir VSÓ tilboðs- og áætlanagerð í tengslum við útboð ýmissa þjónustuverkefna sem falla undir umhirðuverkefni og hefur ssinnt eftirlitsstörfum í tengslum við umhirðu og yfirborðsfrágang. VSÓ hefur einnig verið í nánu samstarfi við Iceconsult og Reykjavíkurborg í tengslum við þróun á Umhirðustjóranum, hugbúnaði sen er sérhannaður fyrir umhirðustjórnun.

Þær lausnir sem VSÓ Ráðgjöf býður upp á henta vel þeim sveitarfélögum, stofnunum, og fyrirtækjum sem vilja koma góðu verklagi á umhirðu grænna svæða. Við aðstoðum einnig einkaaðila sem þess óska með umhirðu einkalóða og frístundasvæða.

Í umhirðuteymi VSÓ Ráðgjafar má m.a finna

  • Skrúðgarðyrkjumeistara
  • Landslagsarkitekt
  • Umhverfisfræðing
  • Sérfræðinga í ArcGis

 

Helstu verkefni VSÓ Ráðgjafar á sviði umhirðu eru:

  • Umhirðuáætlun fyrir Reykjavíkurborg
  • Umhirðuáætlun fyrir Þjórsárvirkjanir
  • Umhirðuáætlun fyrir Garðabæ
  • Tilboðs- og áætlanagerð fyrir Alcan í Straumsvík
  • Eftirlit með yfirborðsfrágangi við Laugarneskirkju
  • Eftirlit með yfirborðsfrágangi við Nýbýlaveg
  • Gerð upplýsingahandbókar fyrir sumarstarfsmenn Landsvirkjunar

 

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Droplaug Jónsdóttir

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is