Samráð
Auknar kröfur eru gerðar í flestum verkefnum skipulags- og umhverfismála um aðkomu almennings og annarra aðila. VSÓ Ráðgjöf hefur að undanförnu nýtt sér samráð við almenning og hagsmunaaðila í mati á umhverfisáhrifum og við gerð skipulagsáætlana. Með samráði er leitað eftir áliti staðkunnugra og hagsmunaaðila áður en endanlega ákvörðun er tekin um útfærslu áætlana.
Gagnsemi samráðs felst fyrst og fremst í því að á fyrstu stigum verkefnis eða áætlana fer fram ítarleg og gagnleg vinsun í samráði við helstu hagsmunaðila. Þá felst mikilvægi samráðs í því að skapa sameiginlegan grundvöll fyrir til þess að byggja á og skapa traust milli aðila. Á þennan hátt má tryggja betri sátt um niðurstöðu og skilvirkari vinnu við útfærslu aðgerðar.
Helstu kostir samráðs:
- Auðveldar vinsun - skoðanir helstu hagsmunaaðila á þvi hver aðalatriði máls eru fengnar fram.
- Vankantar skilgreindir þegar í upphafi verkefnis, þar með verður einfaldara að bregðast við nauðsynlegum breytingum á verkefninu.
- Gefur yfirlit yfir mismunandi hagsmuni og þar með þá þætti sem geta valdið deilum, en einnig yfirlit yfir þá þætti sem sátt ríkir um.
- Dregur úr deilum - Athugasemdir koma fram strax í upphafi, þ.e. áður en málið er komið í fastar skorður og eykur þannig líkur á að hægt sé að finna ásættanlega lausn.
- Skapar traust milli mismunandi hagsmunaaðila. Gagnsætt ferli - Hagsmunaaðilar fá upplýsingar og aðgang að þeim sem ákvarðanir taka og unnið er fyrir opnum tjöldum.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Gunnar Thors
|