Mat á umhverfisáhrifum
VSÓ Ráðgjöf hefur mikla sérþekkingu og reynslu af mati á umhverfisáhrifum og gildir það um öll stig matsvinnu:
- Matsskyldu, þ.e. hvort framkvæmd skuli háð mati.
- Matsáætlun, sem er eins konar verklýsing matsvinnu fyrir framkvæmdir sem háðar eru mati. Ákveðið er hvað þurfi að rannsaka og fjalla sérstaklega um í matsvinnu.
- Gerð matsskýrslu um niðurstöðu matsvinnunnar.
- Ráðgjöf er varðar eftirfylgni matsvinnunnar, s.s. vegna framkvæmdaleyfis, vöktunar umhverfisþátta eða útfærslu mótvægisaðgerða.
VSÓ Ráðgjöf hefur frá árinu 1995 unnið að mörgum stórum og umfangsmiklum matsverkefnum en nánari upplýsingar um nokkur þeirra má finna hér á vefnum.

Samráð
Í allri vinnu VSÓ Ráðgjafar er lögð mikil áhersla á að leita þverfaglegrar þekkingar og samráðs. Góð og sterk tengsl við sérfræðinga og umsagnaraðila sem koma að mati á umhverfisáhrifum eru afar mikilvæg sem og við aðra hagsmunaaðila. Vægi samráðs í matsvinnunni hefur aukist á síðustu árum. Þá telur VSÓ Ráðgjöf mikilvægt að framkvæmdaraðili taki virkan þátt í matsferlinu.
Nánar er fjallað um mikilvægi samráðs í skipulags- og umhverfismálum hér á vefnum.
Verkefnisstjórn
Stór þáttur matsvinnunnar er verkefnisstjórn. Matsvinna getur tekið langan tíma, verið kostnaðarsöm og snúið að mörgum þáttum. Því er mikilvægt að nálgast verkefnin á kerfisbundinn og markvissan hátt.
Ávinningur
Reynsla VSÓ Ráðgjafar er að mat á umhverfisáhrifum hafi komið framkvæmdaraðilum til góða, með betri undirbúningi og minni hættu á töfum af ófyrirséðum orsökum. Mikilvægt er að matið sé unnið samhliða hönnun þannig að unnt sé að taka tillit til umhverfisins á fyrstu stigum framkvæmdarinnar. Ávinningur framkvæmdaraðila af matsvinnunni er sá að hann öðlast góða yfirsýn yfir samræmi fyrirhugaðrar framkvæmdar við skipulagsáætlanir, kvaðir sem þarf að taka tillit til og samspil hennar við mismunandi umhverfisþætti.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Gunnar Thors |