Áhættugreining
Nauðsynlegt getur reynst að greina hugsanlega áhættuþætti sem tengist starfsemi fyrirtækja. Mikill fjöldi aðferða er til sem nota má sem hjálpartæki við slíka greiningu. Sérfræðingar VSÓ hafa beitt ólíkum aðferðum áhættugreininga við hin ýmsu verkefni. Ein algengasta aðferðin er svokölluð HAZOP (Hazard and Operability analysis) sem er mikið notuð við áhættumat í hvers konar iðnaðarstarfsemi.
Við HAZOP greiningu er myndaður sérfræðihópur sem á hugarflugsfundum fer yfir hnútpunkta kerfisins. Í sérfræðihópnum eru þeir aðilar innan fyrirtækjanna sem hafa mesta þekkingu á viðkomandi kerfi. Hlutverk VSÓ Ráðgjafar er að sjá um að stjórna greiningunni og leiða sérfræðihópinn. Leitað er svara við þeim spurningum sem upp koma hjá þeim aðilum innanhúss sem mesta þekkingu hafa á hverjum hluta og/eða utanaðkomandi sérfræðingum, allt eftir þörfum hverju sinni.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Jónsson |