Um viðbragðsáætlanir
Auk hefðbundinnar ráðgjafar í neyðarstjórnun hefur VSÓ Ráðgjöf einnig unnið sérhæfðar áætlanir með sveitarfélögum um viðbrögð við samfélagsáföllum. Þær áætlanir taka einnig á viðbrögðum starfsmanna og kjörinna fulltrúa sveitarfélagsins á hættu- og neyðartímum.
Viðbragðsáætlanir fyrir fyrirtæki:
Fjölmargir einkaaðilar gegna mikilvægu hlutverki í hverju samfélagi. Því er mikilvægt að skipuleggja viðbrögð á neyðartímum til að draga úr hættu á rekstrarstöðvun og tryggja markvissa endurreisn eftir áföll. VSÓ Ráðgjöf býður upp á gerð áhættumats og gerð neyðaráætlana fyrir fyrirtæki og stofnanir. Þær ná yfir alla starfsemi fyrirtækisins og byggja m.a. á lögum um almannavarnir og vinnuvernd ásamt þeim lögum sem varða viðkomandi fyrirtæki og/eða atvinnugrein.
Viðbragðsáætlanir fyrir ráðuneyti og stofnanir ríkisins:
Ráðuneyti ríkisins og stofnanir sinna mikilvægum verkefnum í stjórnsýslunni. Samkvæmt lögum um almannavarnir ber þessum aðilum að kanna áfallaþol og gera viðbragðsáætlanir um viðbrögð á neyðartímum. VSÓ Rágjöf býður aðstoð við gerð áfallaþols ráðuneyta og stofnana ríkisins. Slíkar áætlanir taka á viðbrögðum á neyðartímum og við endurreisn.
Viðbragðsáætlanir fyrir sveitarfélög og almannavarnanefndir:
Sveitarfélög gegna lykilhlutverki í samfélaginu og sinna nærþjónustu við íbúa sína. Komi til áfalla er mikilvægt að starfsemi sveitarfélaga raskist sem minnst og er því æskilegt að þau hafi tiltækar viðbragðsáætlanir til að bregðast við áföllum í samfélaginu. VSÓ Ráðgjöf býður upp á ráðgjöf við gerð slíkra áætlana. Viðbragðsáætlanir eru unnar í víðtæku samráði við viðkomandi sveitarfélag, þær ná yfir alla starfsemi sveitarfélaga og taka á skipulagi vegna náttúruhamfara og annarra samfélagsáfalla. Í þeirri viðbragðs áætlun er m.a. kveðið á um hlutverk sveitarstjórna og starfsmanna sveitarfélaga á neyðartímum og við endurreisn eftir samfélagsleg áföll. Einnig er boðið upp á ráðgjöf til almannavarnanefnda vegna gerðar viðbragðsáætlana í héraði.
Viðbragðsáætlanir vegna heimsfaraldurs inflúensu:
Í Landsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu sem unnin var undir stjórn almannavarna og sóttvarnalækni er gerð krafa til ýmissa samfélagslegra mikilvægra aðila um gerð neyðaráætlana vegna heimsfaraldurs inflúensu. VSÓ Ráðgjöf býður upp á ráðgjöf við gerð viðbragðsáætlana vegna heimsfaraldurs inflúensu. Við gerð þeirra er m.a. stuðst við lög um almannavarnir nr.82/2008 og lög um sóttvarnir nr.19/1997.
Nánari upplýsingar veitir Herdís Sigurjónsdóttir |