Um neyðarstjórnun
Í neyðarstjórnun felst að kortleggja hættu, gera úrbætur þar sem þess er þörf og móta viðbrögð til að komast hjá rekstrarstöðvun á neyðartímum og draga úr afleiðingum áfalla. Mótun neyðarstjórnunarkerfis sem unnin er með starfsmönnum fyrirtækisins, eykur vitund starfsmanna og samstarfsaðila og leiðir jafnframt til úrbóta. Viðbragðsáætlanir og þjálfun starfsmanna tryggir skjótari og markvissari viðbrögð á neyðartímum. Mikilvægt er að neyðarskipulag fyrirtækja og stofnana sé aðlagað að skipulagi almannavarna, til að tryggja skjót og samræmd viðbrögð á neyðartímum.
Neyðarstjórnun felur m.a. í sér:
- Kortlagningu á innri og ytri starfsemi og áhættuþáttum fyrirtækis eða stofnunar
- Gerð neyðaráætlunar þar sem m.a. eru ritaðar verklagsreglur og vinnuleiðbeiningar um skipulag fyrirtækis eða stofnunar á hættu- og neyðartímum
- Gerð rýmingaráætlunar
- Aðlögun að skipulagi almannavarna á landsvísu og í héraði
- Þjálfun starfsfólks í réttum viðbrögðum
- Innleiðingu neyðarskipulags
- Skipulagningu og framkvæmd æfinga
Stjórnsýsluráðgjöf á sviði neyðarstjórnunar felst í:
- Ráðgjöf við neyðarstjórnun á neyðartímum og við endurreisn
- Almenn ráðgjöf fyrir fyrirtæki og stofnanir ríkis og sveitarfélaga í málefnum er varða almannavarnir og viðbragðsmál
- Aðlögun núverandi neyðarskipulags að skipulagi almannavarna
- Ráðgjöf til fyrirtækja og opinberra aðila vegna samskipta við ríki og sveitarfélög
- Stjórnsýslugreiningar og stjórnsýsluúttektir
Nánari upplýsingar veitir Herdís Sigurjónsdóttir |