Landmælingar
VSÓ Ráðgjöf annast sérhæfða landmælingaþjónustu fyrir sveitarfélög og verktaka, en landmælingar koma einnig við sögu í flestum verkefnum á Byggðatækni og samgöngusviði – bæði við hönnun og framkvæmdaeftirlit. Stofan hefur yfir að ráða tveim Leica alstöðvum og tveim Leica GPS tækjum, auk hallamæla og fleiri mælitækja. Beitt er fullkomnasta hugbúnaði til úrvinnslu mæligagna s.s. gerð landlíkana, magnmælinga o.s.frv.
Helstu verkefni eru:
- Fastmerkjakerfi sveitarfélagsins Voga
- Uppmælingar lóða og fasteigna við Eiríksgötu og Egilsgötu í Reykjavík. Gerð mæliblaða
- Verktakaþjónusta við Eykt, ÍAV og fleiri verktaka
- Fastmerkjakerfi og eftirlitsmælingar við Sultartangavirkjun, Vatnsfellsvirkjun, Búðarhálsvirkjun og stöðvarhús Kárahnúkavirkjunar í Fljótsdal
Nánari upplýsingar um landmælingar veitir Einar K. Stefánsson
|