Hljóðvist
Hljóðvist er mikilvægt heilsufarslegt og skipulagslegt málefni. VSÓ ráðgjöf hefur til staðar fullkomið forrit til að byggja upp þrívíddarlíkön og reikna útbreiðslu umferðarhávaða, hanna hljóðvarnir og skoða áhrif þeirra. Niðurstöðurnar geta verið dynlínukort í plani og/eða sniði ásamt hljóðstigi fyrir utan glugga hverrar hæðar húsa í samræmi við reglugerð um hávaða nr. 933/1999.
Dæmi um verkefni VSÓ Ráðgjafar á sviði hljóðvistar eru:
- 101 Skuggahverfi
- Arnarnesvegur, Reykjanesbraut - Breiðholtsbraut
- Grafarholt
- Hringvegur, Víkurbraut - Skarhólabraut
- Hrólfskálamelur - Suðurströnd, Seltjarnarnesi
Nánari upplýsingar veitir Smári Ólafsson, smario@vso.is
|