Leturstærð
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. >Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðakerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsíða - Þjónustulínur - Byggðatækni og samgöngur - Umferðar- og samgöngutækni - Almenningssamgöngur

Almenningssamgöngur


Það er á margan hátt bæði flóknara og erfiðara að skipuleggja almenningssamgöngur en aðrar samgöngur þar sem um margbrotið val á ferðamáta og ferðaleið er að ræða. Sá einstaklingur sem er að leggja upp í ferð, þarf að gera upp við sig hvort hann ætlar að ferðast með almenningssamgöngum og hvaða leið hann ætlar að fara. Hann þarf þar að taka með í reikninginn hraða, kostnað, fjölda skiptinga, öryggi og þægindi og ekki nauðsynlega í þessari forgangsröð.

Það er því grundvallaratriði að vanda skipulag almenningssamgangna og hafa til þess rétt verkfæri og þekkingu. VSÓ Ráðgjöf hefur yfir að ráða einum öflugasta hugbúnaði sem völ er á við áætlanagerð og leiðahönnun almenningssamganga, TransCad. Þá er VSÓ Ráðgjöf í nánu samstarfi við ÅF Trafikkompedence í Stokkhólmi sem er leiðandi ráðgjafafyrirtæki á þessu sviði í Svíþjóð.

VSÓ Ráðgjöf hefur annast ráðgjöf fyrir Strætó bs við heildarendurskoðun leiðakerfis Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Byggt hefur verið upp tölvulíkan sem hermir val einstaklings á ferðaleið. Með forritinu er unnt að besta val á akstursleiðum vagna, bæði m.t.t. rekstarhagkvæmni og þjónustugæða.

Helstu verkefni VSÓ Ráðgjafar á sviði almenningssamgangna hafa verið:

  • Verkefnisstjórn við hagkvæmnisathugun á lestarsamgöngum milli Reykjanesbæjar og Reykjavíkur
  • Tillögur að endurbættu leiðarkerfi Strætó í Breiðholti
  • Samkeppni um gerð frumdraga og tillagna að nýju heildstæðu leiðarkerfi Strætó bs á höfuðborgarsvæðinu
  • Endanleg hönnun leiðarkerfis Strætó bs á höfuðborgarsvæðinu
  • Verkefnisstjórn við stefnumótun Reykjavíkurborgar í samgöngumálum
  • Lestarsamgöngur á höfuðborgarsvæðinu, hagkvæmnisathugun unnin fyrir Samgönguráðuneytið og Reykjavíkurborg
  • Þjónustuútboð aksturs
  • Almenn ráðgjöf fyrir Strætó bs.
  • Forðalíkan fyrir Strætó bs.

 

Nánari upplýsingar veitir Smári Ólafsson

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is