Leturstær
ð Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. >Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðakerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsíða - Þjónustulínur - Byggðatækni og samgöngur - Veitukerfi

Veitukerfi


Auk hefðbundinnar hönnunar fráveitu í tengslum við vega- og gatnagerð hefur VSÓ Ráðgjöf einnig annast sérhæfða ráðgjöf í fráveitumálum. Mest hefur þar borið á gerð heildaráætlana um úrbætur í fráveitumálum sveitarfélaga, samhliða verkhönnun einstakra áfanga.

Í vinnu sinni hefur VSÓ Ráðgjöf haft hagkvæmni að leiðarljósi og sett spurningarmerki við nauðsyn hreinsivirkja og fært fyrir því gild rök. Að áeggjan sveitarfélaganna flutti VSÓ Ráðgjöf erindi á SATS fundi 2002 um sýn sína á þau verkefni sem við blasa í fráveitumálum sveitarfélaga og hvaða aðferðum skuli beitt við úrlausn þeirra. Birtist grein um þessi mál í Sveitarstjórnarmálum 5. og 6. tbl. 2003 sjá grein í pdf.

Í Bessastaðahreppi vann VSÓ Ráðgjöf skýrslu um lausn fráveitumála hreppsins, þar sem umhverfismál og hagkvæmni lausna var haft að leiðarljósi. Á grundvelli skýrslunnar hannaði VSÓ Ráðgjöf fyrsta og eina skolpþrýstilagnakerfi á landinu, ásamt tilheyrandi útrás. Um er að ræða kerfi þar sem skolpi er dælt um PEH plast leiðslur í stað sjálfrennslis lagna. Slík kerfi henta vel í dreifðri byggð á flötu landi þar sem sjálfrennslislagnir myndu lenda mjög djúpt í jörðu, með tilheyrandi kostnaði. Í skolpþrýstilögnum þarf ekki að hafa áhyggjur af halla og lagnir eru lagðar eins grunnt og unnt er.

Sambærileg fráveituskýrsla var unnin fyrir Sandgerðisbæ. Þar var lausnin hins vegar hefðbundin sjálfrennslislögn með dælustöðvum. VSÓ Ráðgjöf forhannaði allt kerfið og hefur nú verkhannað fyrsta áfanga þess. VSÓ Ráðgjöf hefur unnið skýrslur um heildaráætlanir endurbóta í fráveitumálum neðangreindra sveitarfélaga:

  • Sandgerði
  • Bessastaðahreppi
  • Siglufirði
  • Þorlákshöfn
  • Vogum á Vatnsleysuströnd
  • Dalvík
  • Vesturbyggð / Bíldudalur

Auk ofangreindra verkefna í fráveitumálum þá hefur VSÓ Ráðgjöf einnig unnið áætlanagerð og hannað endurbætur á dreifikerfi vatnsveitu í Bessastaðahreppi, Sandgerði og Vogum. Markmið er að tryggja nægt og öruggt vatn, bæði til neyslu og slökkvistarfa.

Nánari upplýsingar veitir Einar K. Stefánsson

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is