Vega- og gatnagerð
VSÓ Ráðgjöf beitir fullkomnustu gerð hönnunarforrita til að auka afköst við hönnun vega og gatna. Gerð eru þrívíð landlíkön byggð á uppréttum loftmyndum og þau leiðrétt eftir þörfum skv. nánari landmælingum. Öll hönnun er vistuð í sérstökum gagnagrunni þar sem unnt er að halda utan um og keyra saman hin ýmsu gögn, teikna þversnið, reikna út magntölur o.fl. Einn stærsti kostur þessara nýju forrita er þó hve auðvelt og fyrirhafnarlítið er að breyta hönnun og teikningum og endurreikna magntölur.
Samhliða hönnun gatna er algengast að einnig séu hannaðar allar fráveitulagnir, auk þess sem gerð eru hæðarblöð og mæliblöð af lóðum. Í sveitarfélögum utan Reykjavíkur er einnig algengt að dreifikerfi vatnsveitu sé hluti gatnahönnunarinnar. Helstu verkefni VSÓ Ráðgjafar á sviði gatnahönnunar eru:
- Grafarholtshverfi í Reykjavík
- Staðahverfi í Reykjavík
- Ýmis íbúðahverfi og götur á Álftanesi
- Ýmis íbúðahverfi og götur í Sandgerði
- Ýmis íbúðahverfi og götur í sveitarfélaginu Vogum
- Reynisvatnsás í Reykjavík
Hönnun vega og vegagerð er nýlegt starfssvið hjá VSÓ ráðgjöf og hefur verið vaxandi þáttur í starfsemi fyrirtækisins á liðnum árum. Helstu verkefni VSÓ Ráðgjafar á sviði veghönnunar eru:
- Vestfjarðavegur um Dalafjall (Brattabrekka)
- Arnarnesvegur. Reykjanesbraut - Breiðholtsbraut
- Hringvegur. Víkurbraut - Skarhólabraut
- Lambhagavegur
- Blikastaðavegur
Auk hönnunar vega og gatna hefur VSÓ Ráðgjöf sinnt eftirliti með umfangsmiklum verkefnum á því sviði. Fyrirtækið var brautryðjandi á Íslandi við gerð eftirlitskerfa sem þróað var í ýmsum verkefnum á árunum 1995-1998. Byggist það upp á gerð eftirlitsáætlana þar sem verklag við umsjón og eftirlit með hverjum verkþætti er skilgreint ásamt úttektareyðublöðum o.fl. stoðpappírum sem nýttir eru til að skerpa á verklagi og tryggja skráningu verkgæða. Hefur það kerfi verið tekið upp af Vegagerðinni og er handbókin „Umsjónarmaðurinn“ sem gefin er út af Vegagerðinni byggð upp með sama hætti. Ýmsir aðrir verkkaupar hafa svo tekið upp svipað verklag.
Helstu verkefni sem VSÓ Ráðgjöf hefur haft eftirlit með í gatna- og vegagerð eru:
- Gatnamót Höfðabakka og Vesturlandsvegar
- Vegtengingar Hvalfjarðarganga
- Gatnamót Vesturlandsvegar og Sæbrautar
- Endurbygging Reykjavíkurflugvallar
- Hafnarfjarðarvegur. Gatnamót við Nýbýlaveg
- Lyngdalsheiðarvegur
- Hlíðarfótur
Nánari upplýsingar um vega- og gatnagerð veitir Einar K. Stefánsson |