Vörustjórnun
Í tuttugu ár hefur VSÓ Ráðgjöf
verið í fararbroddi í ráðgjöf við vörustjórnun
hér á landi. Fyrirtækið hefur unnið að vörustjórnunarverkefnum
fyrir fjölda verslunar-, þjónustu- og framleiðslufyrirtækja,
stórra og smárra. Vörustjórnun snýst
um allar þær ólíku en samþættu
aðgerðir sem þarf til að flytja og meðhöndla
aðföng frá upprunastað til áfangastaðar.
Neytendur nútímans krefjast lágs vöruverðs,
hraða og áreiðanleika í þjónustu. Það getur
ráðið úrslitum um samkeppnishæfi fyrirtækja
hvernig þessum málum er háttað. Með samstarfsaðilum
er veitt víðtæk ráðgjöf við stjórnun
aðfangakeðjunnar, (Supply Chain Management), sem m.a tekur
til eftirfarandi viðfangsefna:
- Stefnumótun í stjórnun aðfangakeðju
- Staðarval
- Lager- og verksmiðjuskipulag
- Skipulag og nýting athafnasvæða
- Dreifing og birgðahald
- Skipulag flutninga- og dreifikerfis
- Endurhögun vinnuferla
- Innkaup
- Öflun aðfanga
- Framleiðsla
- Þjónusta og sala
- Upplýsingaflæði
Aðferðafræði vörustjórnunar kemur
jafnt að notum hjá fyrirtækjum í framleiðslu,
við dreifingu og þeim sem selja vöru eða þjónustu.
Lykilatriði til að ná árangri er ítarleg
skilgreining á þörfum og markmiðum viðskiptavinar.
Sú undirbúningsvinna verkefna reynist flestum fyrirtækjum
dýrmæt ein og sér, auk annars ávinnings
sem leitt getur af verkefnunum.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Sigurþórsson |