Framkvæmdaeftirlit
Eftirlit með framkvæmdum felst í að gæta þess
að verk sé unnið samkvæmt fyrirliggjandi samningsgögnum.
Verki er ekki lokið fyrr en lokaúttekt hefur farið fram
og staðfesting þar um liggur fyrir frá eftirlitsaðila.
VSÓ Ráðgjöf hvetur verktaka til öflugs
innra eftirlits og leggur áherslu á að þeir
geri skilmerkilega grein fyrir því eftirlitskerfi sem þeir
beita bæði gagnvart eigin framleiðslu og birgjum.
Rík áhersla
er lögð á fyrirbyggjandi eftirlit og verkþáttarrýni þar
sem hver verkþáttur er krufinn til mergjar áður
en hafist er handa. Í verklok er gerð skilagrein um verkið. Í henni
er framvindan rakin og gerð grein fyrir árangri með tilliti
til verklýsingar og gæðakrafna. Einnig er gerður
samanburður á raunkostnaði og frumáætlunum
um kostnað og skýringar gefnar ef frávik eru.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Sigurþórsson
|