Verkefnastjórnun
Verkefnastjórnun felst í því að leiða
skilgreint verkefni að ákveðnu markmiði. Það getur
verið mannvirki, nýjungar á sviði framleiðslu
eða val á tækjabúnaði svo eitthvað sé nefnt.
Verkefnastjórnun er kerfisbundin vinna sem hefst með verkefnisáætlun. Þar
er tekið tillit til umhverfis, þátttakenda, tímamarka,
markmiða og annarra þeirra þátta sem kunna að hafa áhrif á verkefnið.
Vinnuaðferðir eru sóttar í smiðju gæðastjórnunar.
Einkenni góðrar verkefnastjórnunar eru að réttir
aðilar leggi til þekkingu á réttum tíma.
Upplýsingamiðlun og skráning framvindu verksins eru
ríkir þættir í verkefnastjórnun.
Verkefninu lýkur með greinargerð þar sem fjallað er
um hvernig til tókst miðað við upphafleg markmið verkkaupa,
varðandi tíma, kostnað og árangur.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Sigurþórsson
|