Hússtjórnar- og iðnstýrikerfi
Á síðustu árum hafa möguleikar til
stýringar og vöktunar á svokölluðum húskerfum, þ.e.
loftræsikerfum, rafkerfum, hita- og þrifakerfum, aukist
verulega með þróun tölvukerfa. Fjarstýring þessara
kerfa er möguleg bæði með beinlínutengingu
og gegnum internetið. Sem dæmi má nefna að með einföldum
hætti er unnt að lækka orkutoppa raforkunotenda. Þannig
má lækka innkaupsverð raforku og dæmi er um
að slík ráðstöfun borgi sig upp á 1 ½ -
2 árum. Hússtjórnarkerfi eru hentug fyrir stór
og flókin sem lítil og einföld húskerfi.
Nú er komin á markaðinn öflugur búnaður
til stjórnunar á litlum kerfum sem hæfir mörgum
smærri fyrirtækjum. Leggja verður áherslu á að val
hússtjórnarkerfis sé í samræmi
við þarfir hvers og eins og hagkvæmni sé ávallt
höfð að leiðarljósi.
Iðnstýrikerfi
Í framleiðslu- og iðnaðarfyrirtækjum hefur sjálfvirkni á véla-
og tækjabúnaði aukist til muna síðustu árin.
Hönnun og val á réttum stýri- og tækjabúnaði
getur verið afgerandi fyrir afkomu þessara fyrirtækja. Fyrir
utan aukin afköst þá er einnig unnt að fylgjast með ástandi
vélbúnaðar með réttum stýribúnaði
og þannig koma í veg fyrir framleiðslutap. Hægt er að fjarstýra
og fylgjast með vélbúnaði með beinlínutengingu
eða í gegnum internetið. Leggja verður áherslu á val á iðnstýrikerfum í samræmi
við þarfir fyrirtækja og að hagkvæmni sé höfð að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar veitir Símon Unndórsson |