Lýsingarhönnun
Rétt birta og rétt hönnun lýsingar skiptir miklu máli fyrir líðan fólks hvort sem er á vinnustað, í tómstundum eða á heimilum. Með víðtækri þekkingu, reynslu og nýjasta búnaði til hönnunar á lýsingu, tryggjum við smekklegar og hagkvæmar lausnir sem hæfa hverju tilviki.
Val og staðsetning á lampabúnaði er ekki eingöngu verkfræðilegt úrlausnarefni heldur er smekkur fólks mismunandi í þessum efnum. Þetta gerir lýsingarhönnun að mjög skapandi viðfangsefni og hér er samvinna við arkitekta og verkkaupa afgerandi.
Dagsbirtan er stór þáttur í lýsingarhönnun og er þekking okkar og reynsla með úrvinnslu á dagsbirtu ásamt mismunandi ljósgjöfum og tæknilegum lausnum, hornsteinninn í okkar lýsingarhönnun.
Meðal viðfangsefna VSÓ Ráðgjafar við lýsingarhönnun eru
- Skólar
- Skrifstofur
- Hótel
- Verslanir
- Hjúkrunarheimili
- Spítalar
- Kvikmyndahús
- Íþróttahús
- Götur, stígar, lóðir og samgöngumannvirki
- Sérlýsing ýmisskonar
Nánari upplýsingar veitir Símon Unndórsson |