Hönnunar- og kostnaðarrýni
Rýni verkefna er mikilvægur hlekkur í gæðastjórnun
við framkvæmdir og undirbúning þeirra. Samfara
uppbyggingu gæðakerfis VSÓ upp úr 1994 hóf
fyrirtækið að beita þessu verklagi í verkefnum á þess
vegum. Nú er þetta verklag órjúfanlegur
hluti framkvæmdaeftirlits og hluti af stöðluðum
kröfum allra stærri verkkaupa.
VSÓ Ráðgjöf
hefur verið brautryðjandi og leiðandi í þeirri
aðferðafræði sem viðhöfð er við verkefnarýni.
Verkefnarýni er skilgreind sem skjalfærð, samfelld og kerfisbundin
yfirferð á verkefnum, með það fyrir augum að uppfylla
setta og skilgreindar kröfur. Rýni verkefna er oft skipt í þætti
eins og hönnunarrýni, kostnaðarrýni og verkþáttarýni.
Fyrstu verkefnin hérlendis þar sem kerfisbundin hönnunarrýni
fór fram voru unnin upp úr 1994 undir stjórn VSÓ.
Síðan þá hefur mikill fjöldi verka verið rýndur, þ.m.t.
flestar nýjar grunnskólabyggingar í Reykjavík. VSÓ Ráðgjöf
hefur því verið brautryðjandi í þeirri aðferðafræði
sem þar er viðhöfð. Hönnunarrýni er skjalfærð,
samfelld og kerfisbundin yfirferð á verkefnum, með það fyrir
augum að uppfylla settar og skilgreindar kröfur. Hönnunarrýni
tekur á útfærslu lausna og eiginleikum þeirra með það að markmiði
að fá bæði bestu tæknilegu lausnina og þá hagkvæmustu.
Kostnaðarrýni er verkfæri sem nota má til að fylgjast
með þróun kostnaðar á hönnunar- og framkvæmdaskeiði.
Ennfremur kemur það að góðum notum þegar ná þarf
niður kostnaði á undirbúningsskeiði framkvæmda.
Nánari upplýsingar veitir Þorbergur Karlsson |