Menntaskólinn í Lillehammer

Viðbygging og endurbætur á Menntaskólanum í Lillehammer, Noregi

Í verkefninu felst forhönnun viðbyggingar við framhaldsskóla í Lillehammer, alls 2.700 m2, ásamt endurbótum á friðlýstri eldri 2.000 m2 skólabyggingu. Byggingin er hönnuð í þrívídd með BIM aðferðarfræði.

Hlutverk VSÓ í verkefninu:

  • Hönnun jarðtækni.
  • Hönnun burðarvirkja.
  • Hönnun lagna- og loftræsikerfa.
  • Hönnun rafkerfa og lýsingar.
  • Áhættugreining ásamt öryggis-, heilsu- og umhverfisáætlun.

Verktími: 2013-2015.

Verkkaupi: Oppland fylkeskommune í Noregi.