|
Samtök Sveitarfélaga á Austurlandi hafa nú tekið við sérleyfum vegna aksturs til fólksflutninga í sínum landshluta. Með þessu hafa skapast möguleikar til að skipuleggja almenningsamgöngur á svæðinu sem eina heild og stuðla þannig að bættum almenningssamgöngum.
|  |
|
Í byrjun árs hófst akstur skv. nýju leiðarkerfi á Suður- og Suðausturlandi þar sem eitt samtengt leiðakerfi nær frá Reykjavík og austur að Höfn í Hornafirði. Strætó bs. sér um reksturinn og hefur að því tilefni m.a. sett upp rauntímakort á vefnum þar sem sjá má hvar vangnar eru staddir hverju sinni.
|  |
|
VSÓ hefur tekið saman tillögu um samfellda hjólaleið umhverfis Mývatn. Hjólaleiðin á að opna á möguleika hjólreiðafólks til að ferðast um landslag og náttúru Mývatnssveitar út frá forsendum vistvænna samgangna og stuðla að öruggari umferð.
|  |
|
Hugmyndir um endurgerð miðaldadómkirkju í Skálholti voru kynntar nú nýverið. Slíkar kirkjur eru eitt af undrum íslenskrar sögu og menningar, byggðar undir áhrifum evrópskra steinkirkna en úr timbri líkt og norskar stafkirkjur.
|  |
|
|