8. júní 2018

Samgönguáætlun 2019-2030, auglýsing um matslýsingu

Í undirbúningi er gerð samgönguáætlunar 2019-2030. Áætlunin er mótuð á grundvelli stefnumörkunar samgönguráðherra samkvæmt lögum nr. 33/2008 um samgönguáætlun í víðtæku samráði viða lmenning og hagsmunaaðila. Samgönguáætlun er háð lögum um umhverfismat áætlana.

Matslýsing áætlunarinnar er nú til kynningar og vonast Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið til þess að sem flestir kynni sér efni hennar.  Í matslýsingu er gert grein fyrir:
– Hvernig staðið verður að matsvinnunni.
– Hvað muni koma fram í umhverfisskýrslu.
– Hverjir séu helstu áhrifaþættir áætlananna.
– Hvaða umhverfisþættir kunna að verða fyrir áhrifum.
– Gögnum sem lögð verða til grundvallar.
– Matsspurningum og viðmiðum við mat á vægi og umfangi umhverfisáhrifa.

Matslýsingin er aðgengileg hér á vefnum sem og á heimasíðu Samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytisins. Senda skal skriflegar athugasemdir eða ábendingar um matslýsingu með tölvupósti á netfangið samgongurad@srn.is fyrir 29. júní 2018.  Athugasemdir og ábendingar sem berast munu í kjölfarið verða teknar saman og nýtast við gerð umhverfisskýrslu.

Samgönguáætlun 2019-2030, matslýsing

VSÓ Ráðgjöf vinnur að gerð umhverfismats Samgönguáætlunar 2019-2030.