BREEAM - Vistvæn hönnun (17.08.10)
Nýlega hlaut VSÓ Ráðgjöf réttindi til að annast vottun og ráðgjöf við hönnun á vistvænum mannvirkjum samkvæmt Breeam vottunarstaðli.
Breeam (Building Research Establishment Enviromental Assessment Method) er bresk aðferð sem notuð er til að greina og draga úr umhverfisáhrifum mannvirkja frá frumhönnun til framtíðarreksturs. Aðferðin hefur verið notuð um allan heim frá árinu 1990 og hafa meira en eitt hundrað þúsund mannvirki verið vottuð og yfir fimmhundruð þúsund mannvirki eru í vottunarferli.
Almennt eru vistvænar byggingar hannaðar með það í huga að varðveita og ganga varlega um auðlindir landsins. Samhliða því að vistvæn bygging stuðli að því að viðhalda og bæta náttúrlegt umhverfi skapar hún líka góðar aðstæður fyrir notendur byggingarinnar. VSÓ Ráðgjöf hefur lagt aukna áherslu á hönnun vistvænna bygginga með því að horfa til heildar líftíma byggingar, reksturs, efnisvals, hönnunarforsendna og hvernig staðið er að byggingu mannvirkisins. Með BREEAM vottun hefur VSÓ styrkt enn frekar þessa nálgun stofunnar að hönnun vistvænna bygginga.
Með BREEAM vottun má meðal annars :
- Draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum mannvirkja.
- Stuðla að góðu og heilsusamlegu mannvirki fyrir starfsmenn og/ eða íbúa.
- Fylgjast vel með ástandi mannvirkja og draga úr rekstrarkostnaði.
- Draga úr mengun við byggingu og rekstur mannvirkja.
- Stuðla að endingargóðum byggingarefnum og bættri hönnun almennt
- Stuðla að notkun almenningssamgangna til og frá mannvirki.
- Auka markaðsvirði mannvirkja, bæði við sölu og leigu.
- Bæta ímynd eigenda og rekstraraðila mannvirkja.
Allar byggingar geta hlotið vottun samkvæmt BREEAM staðlinum, hvort sem um er að ræða skrifstofuhúsnæði, verslanir og þjónustu, dvalarheimili, hótel og veitingarekstur eða annarskonar mannvirki.
Frekari upplýsingar um Breeam vottunarferlið veitir Guðbjartur Magnússon.
Vefsíða BREEAM
Íslensk fyrirtæki með leyfi til BREEAM vottunar
|