Ný rekstartækifæri í Egilshöll - Forval (13.08.10)

Reginn ehf. auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í forvali vegna útboðs á leiguhúsnæði í Egilshöll í Reykjavík.
Egilshöll er meðal stærstu og fjölbreyttustu íþrótta- og afþreyingarmiðstöðva á Norðurlöndum og býður upp á margvísleg tækifæri fyrir starfsemi, s.s. verslun, þjónustu og afþreyingar- og íþróttastarfsemi af ýmsum toga.
Í höllinni er fótboltavöllur í fullri stærð með áhorfendaaðstöðu fyrir um 2.000 manns, skautasvell með aðstöðu fyrir 350 áhorfendur, fimleikasalir, líkamsræktarstöð, skotæfingasvæði o.fl. Utandyra eru stærri og minni knattspyrnuvellir, tennisvellir o.fl. Síðla hausts hefja Sambíóin rekstur kvikmyndahúss í höllinni með fjórum kvikmyndasölum. Nú sækja að meðaltali 1.400 manns Egilshöllina daglega en gera má ráð fyrir að höllina sæki að meðaltali 2.300–2.500 gestir dag hvern þegar kvikmyndahúsið hefur starfsemi sína.
Þau svæði sem nú eru boðin út eru flest í nýjum hluta Egilshallar, og eru rúmir 4.000 m². Auk þeirra er boðin út aðstaða fyrir þjónustu, verslun, veitingar o.þ.h. á sameiginlegum svæðum hallarinnar, og eru það um 2.000 m². Húsnæðið gæti t.d. hentað fyrir eftirtalda starfsemi:
- Íþróttastarfsemi, s.s. keilu, dans, klifur og golf.
- Verslun, s.s. íþrótta-, heilsu- og smávörur.
- Veitingasölu, s.s. kaffihús og heilsubar.
- Aðra þjónustu, s.s. hraðbanka, snyrtistofu o.fl.
- Heilsutengda þjónustu, s.s. sjúkraþjálfun og nudd.
Boðið er til kynningarfundar um Egilshöll, viðskiptatækifæri í henni og útboðsferlið, miðvikudaginn 25. ágúst kl. 14.00 og gefst þar tækifæri til að leggja fram fyrirspurnir um útboðið. Kynningin verður haldin í Egilshöll og hefst við anddyri hennar.
Umsóknum skal skilað til VSÓ Ráðgjafar ehf., Borgartúni 20, 105 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 fimmtudaginn 9. september 2010. Þá verða umsóknir opnaðar að viðstöddum þeim umsækjendum sem þess óska.
|