Lamineraðar vikureiningar, nýsköpunarverkefni (23.07.10)
VSÓ hefur nýverið komið að nýsköpunarverkefni sem ber yfirskriftina Lamineraðar vikureiningar. Meginmarkmið með verkefninu er að nýta vikur til bygginga á sem hagkvæmastan hátt. Frumkvöðull verkefnisins er Spöng ehf. sem starfar á sviði húsbygginga og sérhæfðrar mannvirkjagerðar en ásamt Spöng er Fínpússning einnig aðili að verkefninu.
Verkefnið hefur hlotið veglega styrki úr Tækniþróunarsjóði Rannís og Íbúðarlánasjóði frá því ýtt var úr vör árið 2008. Verkfræðistofan Mannvit hefur frá upphafi unnið að rannsóknum og þróun í verkefninu og gerir áætlun ráð fyrir að áfram verði sá háttur á. Þá er ánægjulegt frá því að segja að nýverið hlaut verkefnið framhaldsstyrk úr Tækniþrþróunarsjóði til áframhaldandi vinnu sem gerir kleift að halda áfram rannsóknum og þróun á gerð byggingaeininga úr vikri.
Um yfirumsjón og verkefnisstjórn sér Maríus Þór Jónasson hjá VSÓ Ráðgjöf í samstarfi við Sigurbjörn K Haraldsson, einn af eigendum Spangar ehf.
|