Tillaga að nýju Aðalskipulagi Sandgerðisbæjar 2008-2024 (23.07.10)
Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar auglýsir hér með tillögu að Aðalskipulagi Sandgerðisbæjar 2008 - 2024 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, ásamt umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.
Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar, Vörðunni, Miðnestorgi 3, Sandgerðisbæ og hjá Skipulagsstofnu, Laugavegi 166, Reykjavík frá og 26. júlí til og með 10. september 2010. Tillöguna má einnig skoða á vef Sandgerðisbæjar, Kanon arkitekta og hér á vef VSÓ Ráðgjafar.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til og með 10. september.
Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Sandgerðisbæjar, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests telst samþykkur henni.
Nýtt Aðalskipulag Sandgerðisbæjar 2008-2024 - Tillaga
Greinargerð
Umhverfisskýrsla
Þéttbýlisuppdráttur
Sveitarfélagsuppdráttur
|