Viðhald 2010, sýning í Vetrargarðinum (03.03.10)
Nú líður að opnun sýningarinnar Viðhald 2010 í Vetragarðinum í Smáralind en hún verður sett föstudaginn 5. mars af Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra og stendur yfir dagana 5.-6. mars.
VSÓ Ráðgjöf verður með sýningarbás á Viðhald 2010, þar sem starfsmenn okkar munu vera viðstaddir til skrafs og ráðagerða fyrir gesti sýningarinnar. Okkur til samlætis í básnum verða einnig fulltrúar fyrirtækisins Hús og heilsa ehf. en það er fyrsta og eina fyrirtækið hér á landi sem sérhæfir sig í skoðun og ráðgjöf vegna raka og þeirra vandamála sem hann getur haft í för með sér í húsnæði. Kynnt verður á sýningunni samstarf fyrirtækjanna við skoðun, rannsóknir og alhliða ráðgjöf á sviði eignaviðhalds.
Við hlökkum til að sjá sem flesta á bás númer B5 á sýningunni!

Um viðhald eigna
Vefur Húss og heilsu
Vefur sýningarinnar VIÐHALD 2010
|