Umsóknir um styrki úr Umhverfis- og orkurannsóknasjóði OR (02.03.10)
VSÓ Ráðgjöf hefur sent inn umsóknir um styrki til nokkurra rannsóknaverkefna úr Umhverfis- og orkurannsóknasjóði Orkuveitu Reykjavíkur. Um er að ræða verkefni sem m.a. varða rafvæðingu almenningssamgangna, vistspor Orkuveitu Reykjavíkur, óvissu í mati á umhverfisáhrifum jarðvarmavirkjana, lágstólpa veglýsingu í dreifbýli og umhverfisáhrif vegna jarðvarmanýtingar.
Verkefnin tengjast því mörgum fagsviðum og eru til marks um þá stöðugu þróun sem er í viðfangsefnum ráðgjafa innan fyrirtækisins.
|