Leturstęrš
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Fréttir - Hugmyndir um nýtingu Þríhnúkagígs

Hugmyndir um nýtingu Þríhnúkagígs (24.11.09)

 

Þann 18. nóvember síðastliðinn bauð Bæjarstjórn Kópavgs til kynningar á hugmyndum um nýstárlega nýtingu Þríhnúkagígs í þágu ferðamennsku og fræðslu um náttúru Íslands. Mjög góð mæting var á kynninguna en yfir 200 manns hlýddu á þessa áhugaverðu kynningu sem haldin var í Salnum í Kópavogi.

Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri í Kópavogi setti kynninguna og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra flutti ávarp. Þá kynnti Árni Stefánsson, hellakönnuður og upphafsmaður verkefnisins, aðdraganda þess og Einar Stefánsson, verkfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf flutti kynningarerindi.

Fundurinn var m.a. haldinn í tilefni af útgáfu skýrslu frumathugunar á aðgengi að gígnum, sem unnið hefur verið að allt frá árinu 2004. Í skýrslunni er svarað helstu spurningum um hvort gerlegt sé að opna Þríhnúkagíg fyrir aðgengi almennings. Frumathugunin er ítarleg og mikil rannsóknarvinna liggur að baki henni en bæði skýrslan sjálf og fylgigögn hennar eru aðgengileg hér á vefnum.

Einnig má geta þess að í kjölfar kynningarinnar í Salnum hefur verið opnuð sýning í anddyri Náttúrufræðistofu Kópavogs þar sem hægt er að kynna sér verkefnið í máli og myndum. Sýningin stendur yfir til 18. desember næstkomandi.

 

Frumathugun og nánari upplýsingar um hugmyndir að nýtingu Þríhnúkagígs

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is