Leturstęrš
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Fréttir - Brú á Hvítá í Árnessýslu

Brú á Hvítá í Árnessýslu steypt (24.11.09)

 

Fyrri hluti brúardekks nýrrar brúar yfir Hvítá í Árnessýslu á móts við Flúðir var steyptur föstudaginn 6. og laugardaginn 7. nóvember sl.  Vinna við niðurlögn steypunnar hófst kl. 6 að morgni föstudagsins og lauk steypuvinnunni rétt fyrir kl. 8 að morgni laugardagsins.

Brúin verður 270 metra löng, steypt eftirspennt bitabrú í 6 höfum.  Heildarbreidd brúarinnar er 12 metrar, tvær akreinar auk 2ja metra breiðrar göngu-/reiðleiðar.  Alls fóru 1.900 rúmmetrar af steypu í þennan hluta verksins sem er um 150 metra langur og var steypan flutt bæði frá Reykjavík og Selfossi en 32 steypubílar voru í stöðugum ferðum allan tímann.  Framkvæmdin gekk mjög vel og stóðust allar áætlanir.

Aðalverktaki er Ræktunarsamband Flóa og Skeiða en JÁVERK er undirverktaki þeirra við brúarsmíðina.

VSÓ Ráðgjöf hefur eftirlit með framkvæmdum við brúarsmíðina fyrir hönd Vegagerðarinnar.

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is