Byggingavaktin í fréttum (17.11.09)
Skýrsla VSÓ Ráðgjafar um stöðuna á lóðamarkaði á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að vekja athygli. Nú síðast á föstudaginn fjallaði RÚV um efni skýrslunnar í sjónvarpsfréttum sínum.
Áfram er unnið að uppfærslu á skýrslunni sem kom út í sumar með endurskoðuðum tölum um höfuðborgarsvæðið að viðbættum upplýsingum frá Árborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akranesi.
Áætlað er að ný og uppfærð skýrsla komi út í byrjun desember.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Bollason skipulagsfræðingur hjá VSÓ Ráðgjof
Umfjöllun RUV frá 13. nóvember um stöðuna á lóðamarkaði
Nýbyggingar á höfuðborgarsvæðinu, skýrsla um ástand byggingarsvæða - eldri frétt af vef VSÓ

|