Morgunverðarfundur um nýtt umferðarlíkan höfuðborgarsvæðisins (5.11.09)
VSÓ Ráðgjöf býður til morgunverðarfundar fimmtudaginn 12. nóvember kl. 08.30 - 10.00 í Gullteig A á Grand hótel við Sigtún.
Á fundinum verður fjallað um nýtt umferðarlíkan fyrir höfuðborgarsvæðið. Líkanið hefur verið í þróun á liðnum misserum og er nú m.a. hægt að reikna umferð á háannatíma síðdegis og á morgnana. Farið verður í gegnum hvernig líkanið nýtist við áætlanagerð og hönnun, auk hagrænna og umhverfistæknilegra úttekta á skipulagsáætlunum og uppbyggingarvalkostum.
Dagskrá:
- Nýtt umferðarlíkan höfuðborgarsvæðisins
Smári Ólafsson, samgönguverkfræðingur hjá VSÓ
Almenn kynning
Háannatímaumferð síðdegis og morgna
Notkunarmöguleikar
Þróunarmöguleikar
- Notkun umferðarlíkans við gerð Aðalskipulags Reykjavíkur
Haraldur Sigurðsson, skipulagsfræðingur hjá Skipulags- og byggingasviði Reykjavíkurborgar
Notkun umferðarlíkans við mat á skipulagskostum um byggðaþróun til 2050
Niðurstöður umferðarlíkans nýttar til að meta áhrif byggðaþróunar og samgangna á gróðurhúsalofttegundir, orkunotkun og samgöngukostnað
- Umræður spurningar og svör
Fundurinn er ætlaður: Sveitastjórnarfólki, ráðgjöfum sveitarfélaga, verk- og tæknifræðingum, skipulagsfræðingum, arkitektum, landslagsarkitektum, starfsfólki Vegagerðarinnar, sveitarfélaga og ráðuneyta sem málið varðar, ásamt öðrum áhugasömum.
Fundurinn og veitingar eru í boði VSÓ Ráðgjafar
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 11. nóvember n.k. á netfangið vso@vso.is

|