Áætlun um viðbrögð við samfélagsáföllum (3.11.09)
Sveitarfélagið Árborg samþykkti á
50. fundi sínum, þann 21. október sl., handbók um viðbrögð við samfélagsáföllum en VSÓ Ráðgjöf kom að vinnu við gerð hennar.
Áætlunin byggir á stjórnskipulagi og samfélagsgerð Árborgar og mun, að mati Raghneiðar Hergeirsdóttur bæjarstjóra, skapa umgjörð utan um þau viðbrögð og það endurreisnarstarf sem þörf er á í sveitarfélaginu í kjölfar áfalla. Ragnheiður segir jafnframt að Suðurlandsskjálfti vorið 2008, efnahagskreppa með bankahruni á sama ári, ásamt nú yfirvofandi hættu á alvarlegum inflúensufaraldri hafa skapað aðstæður sem nauðsynlegt er að gefa sérstaka gát í daglegri starfsemi sveitarfélags og við ákvarðanatöku til lengri og skemmri tíma. Viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu sem áður hefur verið samþykkt er hluti af handbókinni.
Endurreisnarteymi Árborgar, sem skilgreint er í handbókinni og hóf störf í kjölfar Suðurlandsskjálftans vorið 2008, hefur enn á sinni könnu verkefni vegna afleiðinga hans auk þess að hafa s.l. ár staðið vaktina vegna ástands og afleiðinga efnahagskreppunnar. Einnig gegnir teymið nú lykilhlutverki fyrir Sveitarfélagið Árborg í viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu. Undir venjulegum kringumstæðum, þ.e. á tímum þar sem stóráföll eru ekki teljandi, er meginhlutverk endurreisnarteymisins að sjá um að lykilstarfsfólk og stjórnendur þekki hlutverk sitt og skyldur ef og þegar til stóráfalla kemur í samfélaginu. Endurreisnarteymið kemur sérstaklega saman í janúar ár hvert til að fara yfir áætlanirnar, uppfæra tengiliðalista og meta hvort þörf sé á breytingum eða viðbótum við áætlunina. Einnig hittist þá hver klasi fyrir sig til að fara yfir áætlanir sínar.
Herdís Sigurjónsdóttir vann með sveitarfélaginu Árborg að gerð handbókarinnar og hófst sú vinna í kjölfar jarðaskjálftanna 2008. Hún var fulltrúi í verkefnahópi „Langtímaviðbrögð við náttúruhamförum“ sem vann sniðmát sem lagt var til grundvallar við vinnuna. Herdís hóf störf hjá VSÓ Ráðgjöf í apríl 2009 og er eitt af hennar verkefnum ráðgjöf til sveitarfélaga um gerð slíkra viðbragðsáætlana.
VSÓ Ráðgjöf óskar Sveitarfélaginu Árborg til hamingju með viðbragðsáætlunina.
|