Úttekt á beitarnýtingu í Mosfellsbæ (17.09.09)
VSÓ Ráðgjöf hefur annast úttekt á ástandi og nýtingu hrossabeitarhólfa í Mosfellsbæ undanfarin tvö ár. Í slíkri úttekt er ástand lands metið m.a. út frá rofi í landinu, nýtingu, sinu og ásýnd. Óvíða er jafn mikil beit innan og í nágrenni þéttbýlis og í Mosfellsbæ, enda hestamennska mikið iðkuð í sveitarfélaginu. Einnig er þar margþætt blanda af sveit og þéttbýli.
Hestamannafélagið Hörður hefur umsjón með beitarnýtingu á fjölmörgum spildum í eigu sveitarfélagsins og er mat sérfræðings, á ástandi og nýtingu þess lands, liður í þeim samningi. Skýrslu er skilað til sveitarstjórnar eftir slíka úttekt og færist ábyrgð á nýtingunni þannig yfir á notandann.
Úttektir í landi Mosfellsbæjar fara fram að hausti, í lok beitartímabils, og er hverju beitarhólfi gefin einkunn út frá ástandi landsins og nýtingu þess skv. aðferð sem þróuð hefur verið af Landgræðslu ríkisins og Landbúnaðarháskóla Íslands. Einnig eru tilgreindar hugsanlegar úrbætur ef þeirra er talin þörf, t.d. getur verið ástæða til að hlífa viðkvæmum svæðum fyrir beit, stytta beitartímann eða fækka hrossum á landinu. Ástand og nýting lands er metið milli ára m.a. með því að taka ljósmyndir af sömu hólfunum ár eftir ár og fæst þannig sjónrænn samanburður.
Verkefnið er liður í því að tryggja sjálfbæra nýtingu beitilands í Mosfellsbæ.
Nánari upplýsingar veitir Björn H. Barkarson
Á mydunum hér að neðan má sjá dæmi um samanburð milli ára á einu af beitarsvæðum Mosfellsbæjar. Efri myndin er frá því í september 2009 en sú neðri frá september 2008.

|