Heimsókn frá Nicaragua (16.09.09)

Þann 9. september síðastliðinn heimsóttu sérfræðingar frá Nicaragua VSÓ Ráðgjöf heim. Um var að ræða hóp á vegum Þróunarsamvinnustofnunar og var fólkið frá ráðuneytum orku- og námuvinnslu og umhverfisráðuneytis. Í fylgd með hópnum var jafnframt Ari Ingimundarson, starfsmaður ÍSOR.
Vinna VSÓ við mat á umhverfisárhifum jarðvarmavirkjana var kynnt fyrir gestunum og ítarlega farið yfir matsvinnu vegna stækkunar Reykjanesvirkjunar. Miklar umræður urðu í hópnum um samanburð á matsferlinu hér á Íslandi og í Nicaragua og þá reynslu sem draga má af þeim 16 árum sem lög um mat á umhverfisáhrifum hafa verið í gildi hér á landi.
Seinnipartinn var síðan farið í skoðunarferð um Reykjanes þar sem gestirnir skoðuðu aðstæður og kynnt voru helstu umhverfisáhrif vegna fyrirhugaðrar stækkunar Reykjanesvirkjunar.
|