Nýbygging Fjölbrautaskólans í Breiðholti afhent (25.08.09)

Þann 20. ágúst síðastliðinn var nýbygging Fjölbrautaskólans Í Breiðholti afhent við hátíðlega athöfn í nýjum fjölnotasal skólans.
Viðstaddir athöfnina voru margir góðir gestir og ekki var annað að heyra en að byggingin vekti almenna hrifningu þeirra, þá ekki síst nýi fjölnotasalurinn með stórbættri aðstöðu mötuneytis.
Nýbyggingin er á þremur hæðum að mestu og samanstendur af tengibyggingu við eldra skólahúsnæði, fjölnotasal, mötuneyti, kennslustofum fyrir myndlistarkjörsvið listnámsbrautar og almennum kennslustofum.
Kennslurýmin rúma um 330 nemendur og fjölnotasalurinn um 300 manns í sæti með mötuneytisuppröðun eða 400 manns við fyrirlestra og aðrar uppákomur.
Nýbygging Fjölbratarskólans í Breiðholti var samstarfsverkefni Menntamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar. Arkitektastofan ARKÍS hannaði bygginguna, SS-Verktakar sáu um aðalverktöku og VSÓ Ráðgjöf um verkefnisstjórn ásamt eftirliti með byggingarframkvæmdum.
|